Áfram veginn

Þátttakendur á íbúaþinginu í Hveragerði lýstu ánægju sinni með að fá tækifæri til að koma hugmyndum sínum og sjónarmiðum á framfæri við bæjaryfirvöld, með þeim hætti sem þar var gert. Frá þinginu bárust skýr skilaboð um að fyrsta verkefnið við að fylgja eftir niðurstöðum þingsins, sé uppbygging á útivistarsvæðinu undir Hamrinum.
Með einföldum hætti og að líkindum án teljandi kostnaðar, er hægt að tengja saman allar helstu perlur Hveragerðis og gera að heildstæðri afþreyingu fyrir íbúa bæjarins og gesti. Þannig er hægt að hlúa betur að útivist, heilsu og samveru allrar fjölskyldunnar og lengja viðdvöl ferðamanna í bænum.

Íbúum er umhugað um að bæta ásýnd og ímynd Hveragerðis og telja að það þurfi að gerast annars vegar með úrbótum á ytra umhverfi og hins vegar með innra starfi bæjaryfirvalda og íbúa. Mikilvægur þáttur í að bæta ímyndina er að stuðla að jákvæðum fréttaflutningi frá Hveragerði, í fjölmiðlum.

Almennt litu þátttakendur á íbúaþinginu svo á að verði ullarþvottastöðin flutt, sé þar spennandi sóknarfæri fyrir bæinn.

Lögð var áhersla á að þingið þurfi að skila sýnilegum árangri, þannig að fólk sé tilbúið til að vera virkt áfram og að traust milli íbúa og bæjaryfirvalda byggist upp. Liður í því er að bæjarstjórn vinni áfram eftir þeim ásetningi sínum að auka samráð við íbúa. Þar skiptir miklu að mörkuð verði stefna um samráð og verklagsreglur þar um, þannig að allir viti að hverju þeir gangi, íbúar, starfsmenn bæjarins og pólitískt kjörnir fulltrúar.


alta@alta.is