|
|
|||
|
|
|||
|
|
Íbúaþing: Kallað eftir sjónarmiðum íbúa"Umhverfi fjölskyldunnar" var yfirskrift íbúaþings sem haldið var í Hveragerði, laugardaginn 5. apríl. Þingið sóttu um 110 manns, en áður hafði verið unnið með tæplega 80 nemendum úr Grunnskólanum og kallað eftir þeirra hugmyndum um bæinn sinn. Samtals tóku því hátt í 200 íbúar þátt í þinginu, með einum eða öðrum hætti. Tilgangur þingsins var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa varðandi forgangsröðun þeirra verkefna sem snúa að umhverfi fjölskyldunnar og marka upphafið að aukinni áherslu bæjaryfirvalda á samráð við íbúa. Jafnframt munu niðurstöður þingsins nýtast við endurskoðun aðalskipulags fyrir Hveragerði, sem nú er hafin. Á þessum vef er að finna svipmyndir frá þinginu, ásamt helstu niðurstöðum. Til að fræðast nánar um sveitarfélagið og stjórnun þess er best að heimsækja vef Hveragerðisbæjar, www.hveragerdi.is.
Niðurstöður þingsins voru kynntar í máli og myndum á opnum fundi þriðjudaginn 8. apríl og einnig var gerð greinargerð um niðurstöður. Fjölmargir komu að undirbúningi þingsins. Í stýrihópi sátu forseti bæjarstjórnar, bæjarstjóri, umhverfisstjóri, skólastjóri Grunnskólans og forstöðumaður upplýsingamiðstöðvar. Starfsmaður frá Landslagi tók þátt í upplýsingaöflun og sá um úrvinnslu varðandi skólalóð og umhverfisúrbætur við Breiðumörk. Umsjón með íbúaþinginu var í höndum ráðgjafarfyrirtækisins Alta, en það fyrirtæki sérhæfir sig í íbúaþingum. |
||
|
|
|||