|
|
|||
|
|
|||
|
|
NiðurstöðurÁgrip allra niðurstaðna er að finna neðar á þessari síðu en héðan er vísað á síður með ítarlegum niðurstöðum í meginflokkum - smelltu á þann sem þú vilt skoða nánar:
Ágrip allra niðurstaðnaBæjarstjórn Hveragerðis bauð til íbúaþings þann 5. apríl 2003, undir yfirskriftinni "Umhverfi fjölskyldunnar". Markmið þingsins var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa um helstu málaflokka sem falla undir þessa yfirskrift og nýta við forgangsröðun verkefna. Jafnframt að niðurstöður geti nýst sem efniviður við þá endurskoðun aðalskipulags, sem nú er hafin. Um 110 manns mættu á þingið en áður hafði verið unnið með
um 80 grunnskólanemendum, þannig að samtals lögðu tæplega 200
íbúar Hveragerðis sitt af mörkum í umræðunni um hvernig megi efla
bæinn sem fjölskylduvænan bæ. Samkvæmt niðurstöðum íbúaþingsins, er ásýnd og ímynd
Hveragerðis í ýmsu ábótavant og er fullur hugur í bænum til að
taka á því með samstilltu átaki. Íþróttir og útivist eru lykilþættir í því umhverfi sem fjölskyldunni er boðið. Almennt þarf að bæta íþróttaaðstöðu, sérstaklega íþróttahús og sundlaug, en einnig er kallað eftir betri og fleiri litlum boltavöllum. Umræðan um útivist snýst annars vegar um stígakerfi og hins vegar um útivistarsvæði. Þar ber hæst að bundnar eru miklar vonir við nýtt útivistarsvæði undir Hamrinum, þar sem gæti verið framtíðar "Kjarnaskógur" Hvergerðinga. Með úrbótum á göngu- og reiðstígum, bættum tengingum og með áherslu á gönguleið meðfram Varmá, er hægt að efla til muna möguleika til útivistar og hreyfingar í bænum. Verði ullarþvottastöð sem nú er nálægt Hamrinum færð, er það talið sóknarfæri fyrir Hveragerði. Þar væri hægt að koma upp einhvers konar íþrótta- og/eða menningar- og félagsmiðstöð, fyrir breiðan aldurshóp. Einnig bjóða aflögð gróðurhús upp á ýmsa möguleika. Frá 1. ágúst verður til nýtt starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa hjá bænum og voru það skilaboð íbúaþingsins að leggja beri áherslu á samræmingu og samstarf í forvörnum, félags- og íþróttastarf, bæði í bænum og við nágrannasveitarfélögin. Koma þarf upp samastað fyrir unglinga og auka tómstundamöguleika þeirra sem ekki finna sig í íþróttastarfi. Börn og unglingar lýstu almennt ánægju með bæinn sinn og skólann, en bentu þó á að úrbætur á skólalóð séu brýnar og vilja gjarnan fá leiktæki í sundlaugina. Unglingarnir tóku fram að bærinn skartar mörgum náttúrulífsperlum og hittu þar naglann á höfuðið. Það er einmitt ein helsta niðurstaða íbúaþingsins að með því að tengja einstakar náttúruperlur innan bæjarins og afþreyingu og athyglisverða staði, geti Hveragerði komist í fremstu röð bæjarfélaga á Íslandi, sem hlúa að fallegu og aðlaðandi umhverfi fyrir alla fjölskylduna.
|
||
|
|
|||