





"Ég held að það sem vanti hjá okkur, að
það er margt sem við erum að gera, margt gott, en það er ekkert
alltaf sýnilegt"
"Forgangsraða fjármunum til verkefna sem
snúa beint að fjölskyldunni"
"Klára verkefni sem byrjað hefur verið á
í bænum"
"Aðstaða til íþrótta, leikja og
útivistar verði til fyrirmyndar svo eftir verði tekið."
"Gera sundlaugina eftirsóknarverðari fyrir
barnafólk"
"Göngustígaskipulagið er gott en það
þarf að klára"
"Fyrsta verkefnið: "Kjarnaskóg"
undir Hamarinn"
"Vantar fleiri fótbolta og körfuboltavelli
útí hverfin"
"Hér er ekkert línuskauta- og
hjólabrettasvæði. Á þannig svæði væri hægt að stunda
street-hokký"
"Frá krökkunum: Það er ekki nóg að láta
krakkana hanna velli og leiksvæði, það þarf líka að byggja
þau"
"Skólalóðin er algjörlega óviðunandi
eins og hún er í dag. Það er einlæg ósk okkar að unnið verði
hratt og vel að því skipulagi sem fyrir liggur í dag um bætta
skólalóð"
"Lækka umferðarhraðann, búa til vistgötur
og einstefnur"
"Ullarþvottastöðin er sóknarfæri"
"Nýta ónýtt gróðurhús sem athafnahús
fyrir unga sem aldna bæjarbúa"
"Maður getur labbað allt og það er ekki
mikil umferð í Hveragerði"
"Nemendur fá verkefni við sitt hæfi og
samskipti við kennara og starfsfólk eru í fínu lagi"
|
Niðurstöður um einstök svæði og viðfangsefni
Ásýnd og ímynd
Á þinginu kom fram að íbúum finnst ásýnd bæjarins ábótavant
í ýmsum atriðum, s.s. frágangi í iðnaðarhverfi, á opnum
svæðum, götum og göngustígum og ónýt gróðurhús eru til lýta.
Íbúar skynja að fréttir af fíkniefnamálum og pólitískum
ágreiningi virðast hafa skaðað ímynd bæjarins út á við.
Hvergerðingar eru meðvitaðir um að það er í þeirra valdi að
breyta þessu og er fullur hugur í bænum til að taka á þessum
málum með samstilltu átaki íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og
bæjaryfirvalda.
Forgangsröðun verkefna
Talsvert hefur borið á því að uppbyggingu ýmissa
umhverfisverkefna og frágangi þeirra hafi ekki verið lokið til fulls
og eru það skilaboð íbúaþingsins að ganga þurfi harðar fram í
því að forgangsraða verkefnum, bæði þeim sem fyrir liggja og
öðrum nýjum sem eru á döfinni. Þetta á reyndar bæði við um
umhverfisverkefni og önnur verkefni bæjarins.
Íþróttaaðstaða
Fram kom að bæta þurfi íþróttaaðstöðu til muna.
Íþróttahúsið er orðið of lítið fyrir almenna notkun. Óskað
var eftir fjölgun á körfu- og boltavöllum á leiksvæðum, eins og
hverfis- og grenndarvöllum og að komið verði upp malarvelli fyrir
fótbolta. Sundlaugin nýtur greinilega mikilla vinsælda bæði meðal
heimamanna og gesta, en þó voru flestir á þeirri skoðun að bæta
þurfi þar leikaðstöðu fyrir börn, þó svo að þá þurfi að
fórna því rólega andrúmslofti sem laugin býður uppá.
Göngu- og reiðstígar
Fyrir liggur umhverfisskipulag Hveragerðis þar sem gert er ráð
fyrir göngu- og reiðstígakerfi. Almennt kom fram ánægja með
skipulag göngustíga, en bent var á að það þurfi að ganga betur
frá þeim og tengja göngustígana í byggðinni við grænu svæðin
og/eða útivistarsvæðin í bænum og við útjaðarinn, þ.m.t.
útivistarsvæðið undir Hamrinum. Einnig komu fram ábendingar um að
merkingar þurfi að bæta.
Reiðstígum þarf að fjölga að mati þátttakenda, m.a. til að koma
í veg fyrir að göngustígar séu notaðir sem reiðstígar.
Nauðsynlegt sé að eiga samstarf við hagsmunaaðila og Ölfus í
þessu máli.

Sú hugmynd kom einnig fram að nota Varmána meira sem
útivistarsvæði. Meðfram ánni væri hægt að koma upp gönguleið
sem bæði bæjarbúar og gestir gætu notið.

Útivistaraðstaða - Hamarinn
Fyrir dyrum stendur að halda áfram að bæta útivistaraðstöðu
á svæðinu sunnan undir Hamrinum, en þar er nú þegar fjölnota
grasvöllur og kominn göngustígur yfir og við Hamarinn, sem að hluta
er í skóglendi. Þátttakendur á íbúaþinginu fögnuðu þessu
framtaki og lögðu gríðarlega áherslu á að þeirri uppbyggingu
verði haldið áfram af krafti. Líkur eru á að ullarþvottastöð
sem stendur í grennd við svæðið, verði lögð af á þeim stað og
sjá íbúar það sem sóknarfæri sem ætti að tengja
útivistarsvæðinu. Þátttakendur sáu fyrir sér að þarna geti
orðið "Kjarnaskógur" Hvergerðinga, sem jafnframt muni
laða að sér gesti víðar að.

Leik- og útivistarsvæði
Ýmsar ábendingar komu um útivistar- og leiksvæðin í
Hveragerði, önnur en undir Hamrinum. Börnin sögðu meðal annars að
skólalóðin sé í raun aðal leiksvæðið. Fram kom að það vanti
fleiri minni sparkvelli inni í íbúðahverfum. Helstu hugmyndir og
ábendingar er að finna á kortinu.

Skólalóð
Unnið er að endurhönnun skólalóðar og er sú vinna í höndum
fyrirtækisins Landslags. Þátttakendur gátu kynnt sér þau drög sem
nú liggja fyrir og komið athugasemdum og hugmyndum á framfæri við
starfsmann Landslags.
Talað var um að gróður ætti að vera í lágmarki, enda nýtist
nálægðin við Lystigarðinn. Nefnt var að gæta þurfi að
ferlimálum fatlaðra.

Umferð
Ýmsar ábendingar komu fram um umferð í Hveragerði, sem sjá má
hér. Varðandi lokun á Skólamörk kom fram sú hugmynd að það
yrði eingöngu gert á álagstíma, t.d. með því að strengja keðju
yfir götuna.

Áformaðar eru breytingar á Breiðumörk, til að draga úr umferð
og gera götuna aðlaðandi og koma þær til framkvæmda á þessu
ári. Á íbúaþinginu var hægt að koma með ábendingar og
athugasemdir við þá hönnun sem nú liggur fyrir. Helst komu
athugasemdir um staðsetningu trjáa, að tré á miðri götunni byrgi
útsýni fyrir stærri bíla og nefndur sá möguleiki að hafa tré til
hliðanna og þrengja götuna.
Staðsetning blaða- og fernugáma
Kallað var eftir hugmyndum um staðsetningu blaða- og fernugáma.
Sjá mynd.

Menningar- og félagsmiðstöð
Áhugi Hvergerðinga á að komið verði upp einhvers konar
menningar- og félagsmiðstöð kom greinilega fram á íbúaþinginu.
Margvísleg starfsemi var þar nefnd til sögunnar, s.s.
íþróttaaðstaða og aðstaða fyrir félagsstarf, námskeið og
tómstundir. Nefndar voru hugmyndir á borð við handverkshús,
kaffihús og blóma- og grænmetismarkað. Miðstöðin ætti að
höfða til allra aldurshópa, en lögð var sérstök áhersla á
aldurshópinn 16 - 20 ára. Það húsnæði sem helst var nefnt fyrir
slíka starfsemi var ullarþvottastöðin, gamla hótelið og aflögð
gróðurhús.
Starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
Frá 1. ágúst n.k. verður komið á fót nýju starfi íþrótta-
og æskulýðsfulltrúa og var það eitt af markmiðum þingsins að
kalla eftir hugmyndum um þau verkefni sem hann ætti að sinna.
Þátttakendur töldu nauðsynlegt að mótuð verði stefna um starfið
og verkefna- og kostnaðaráætlun í framhaldi af því. Meðal
verkefna verði að samræma bæði félagsstarf barna og það
forvarnastarf sem þegar er unnið í bænum. Leggja þurfi áherslu á
að koma upp samastað fyrir unglinga og bæta íþróttaaðstöðuna,
en jafnframt að auka tómstundamöguleika þeirra sem ekki finna sig í
íþróttastarfi. Talið var mikilvægt að stefna að því að auka
samveru kynslóða og að efla enn frekar samstarf við
nágrannasveitarfélögin á sviði íþrótta- og æskulýðsmála.
Hugmyndir barna og unglinga
Fyrir þingið var unnið með 5. bekkjum Grunnskólans og 9. bekk og
fleiri nemendum á unglingastigi og kynntu fulltrúar þeirra
niðurstöður sínar á þinginu. Fram kom ánægja með skólann eins
og reyndar líka hjá hinum fullorðnu. Yngri börnin lýstu því yfir
að það er gott að búa í Hveragerði, vegna þess hvað bærinn er
rólegur og hægt að labba allt sem þau þurfa að fara. Þau eru
ánægð með sundlaugina en bentu á að það mætti setja þar
rennibraut. Þau nefndu það sérstaklega að "fólkið er
skemmtilegt út af því að við þekkjumst svo vel".
Eldri krakkarnir eru að sama skapi ánægð með litla umferð og
stuttar vegalengdir og fagna því að búið er að opna
félagsmiðstöðina eftir langt hlé. Þau kvarta undan því að
íþróttahúsið er alltof lítið og eiga sér óskir um
gervigrasvöll og litla körfu- og fótboltavelli og síðast en ekki
síst um línuskauta- og hjólabrettasvæði. Þau tóku sérstaklega
fram að umhverfið og náttúran í Hveragerði er mjög falleg og að
í bænum eru margar náttúrulífsperlur. Þau hugsuðu líka út fyrir
bæinn sinn og tjáðu draum sinn um frið á jörð.
|