"Við skulum rækta það sem við höfum, náttúruna, fegurð, fjölskylduna"

 

"Umhverfið og náttúran í Hveragerði er mjög falleg. Hér eru margar náttúrulífsperlur"

  Perlur Hveragerðis - Best varðveitta leyndarmálið?

Á íbúaþinginu í Hveragerði, um umhverfi fjölskyldunnar, komu fram fjölmargar hugmyndir um skemmtilega möguleika og sóknarfæri varðandi útivistarsvæði, göngu- og reiðleiðir og heilsubæinn Hveragerði. Þegar allt þetta hefur verið tekið saman, kemur í ljós að unglingarnir í Grunnskólanum hittu naglann á höfuðið þegar þau sögðu að "í Hveragerði eru fjölmargar náttúrulífsperlur". Óvíða eru jafn margir einstakir staðir innan bæjarmarka, en þeir eru hins vegar vel faldir og í sumum tilfellum er aðgengi að þeim ekki nægilega gott. Það má því segja að þarna séu vel varðveitt leyndarmál sem í reynd eru eitt helsta sóknarfæri Hvergerðinga.

Þar ber helst að nefna, góða sundlaug, lystigarð og hverasvæði inni í miðjum bænum, Varmána, þar sem hægt er að skipuleggja skemmtilega gönguleið og e.t.v. baðastöðu, Hamarinn og svæðið sunnan undir honum, þar sem gæti orðið framtíðar "Kjarnaskógur" Hvergerðinga og loks Ölfusdal, þar sem hafin er skógrækt og áformað er að framtíðar íþróttasvæði Hvergerðinga verði.

Þetta, ásamt íþrótta- og/eða menningarmiðstöð sem e.t.v. yrði staðsett í því húsnæði sem nú hýsir ullarþvottastöð, er sóknarfæri sem með samstilltu átaki íbúa, félagasamtaka, atvinnurekenda og bæjaryfirvalda getur dregið fram þá sérstöðu sem Hveragerði hefur nú þegar yfir að ráða. Með því að tengja þessar perlur og bæta aðgengi, merkingar og upplýsingagjöf, er hægt að skapa útivistarparadís í Hveragerði, sem á sér fáar, ef nokkrar, hliðstæður í þéttbýli hér á landi. Það mun tvímælalaust höfða til þeirra fjölmörgu gesta sem þegar sækja Hveragerði heim en síðast en ekki síst mun það bæta "umhverfi fjölskyldunnar", auðga líf bæjarbúa og gera Hveragerði enn ákjósanlegra til búsetu.

Í Hveragerði eru fjölmargar perlur sem bjóða upp á mikil sóknarfæri fyrir bæinn. Líta þarf á þær sem eina heild og tengja saman með heildstæðum stígatengingum og góðum upplýsingum og merkingum. Hægt væri að gefa göngustígum nöfn og nota sérhönnuð skilti þar sem vísað er á leiðina af einum stað á annan. Þannig styrkist "umhverfi fjölskyldunnar" í Hveragerði, fyrst og fremst fyrir heimamenn, en jafnframt fyrir gesti.

Lykill:
1. Lystigarðurinn
- Gera aðgengilegri frá skólanum.
- Blóma- og grænmetismarkaður, t.d. á og/eða við skólalóð.
- Bílastæði við skóla og íþróttahús nýtast fyrir lystigarð og markað.

2. Sundlaugin í Laugaskarði
- Loka Skólamörkinni tímabundið á skólatíma, t.d. með keðju, frekar en að loka götunni alveg, sem myndi takmarka aðgengi að sundlaug.

3. Hverasvæðið
- Gera það sýnilegra og kynna betur.

4. Varmáin
- Gönguleið meðfram ánni.
- Baðaðstaða við Baulu, t.d. skýli úr torfi og grjóti. Kallar ekki á gæslu.

5. Hamarinn og útivistarsvæði undir Hamrinum
- "Kjarnaskógur" Hvergerðinga - útivistarsvæði fyrir ólíka hópa, fyrst og fremst ætlað heimamönnum, en nýtist einnig ferðaþjónustu.
- Athuga þarf aðgengi að svæðinu, ekki eingöngu í gegnum íbúðasvæði.
- Bílastæði fyrir gesti, e.t.v. norðan við ullarþvottastöð.
- Merkja gönguleið frá hverasvæði.
- Ullarþvottastöð - sóknarfæri tengd svæðinu; útivist, íþróttir, menning.
- E.t.v. rétt að bíða með úthlutun byggingarlóða þar til heildrænt skipulag fyrir útivistarsvæðið liggur fyrir.

6. Ölfusdalur
- Framtíðar íþróttasvæði. Skógrækt.

7. Þjónusta við ferðamenn
- Mikið af þeirri ferðaþjónustu sem dregur til sín hvað flesta gesti, er í dag bundin við afmarkað svæði nálægt þjóðveginum, s.s. Eden og Hótel Örk. Þar er jafnframt áformað að byggja nýja verslunarmiðstöð.
- Mögulegt er að ná hluta af þessum hópi lengra inn í bæinn, með markvissum stígatengingum og góðum upplýsingum og merkingum.


alta@alta.is