





"Verðlaun fyrir að mæta á íbúaþing
verða að koma fljótt. Ekki bara vöfflur með rjóma, það þarf að
vera meira sýnilegt."
"Góð lausn á ýmsu sem aflaga fer eða
vanda þarf betur er t.d. samráð og samvinna íbúa, t.d. með
sjálfboðavinnu"
"Þeir sem mæta ekki á fundi, þeir geta
ekki verið að böggast, þeir mættu ekki. Þeir þurfa að taka
ábyrgð á sínu samfélagi"
|
Samráð
Bæjarstjórn Hveragerðis vill leggja aukna áherslu á samráð
við íbúa við stefnumótun og forgangsröðun verkefna í
bæjarfélaginu og markaði íbúaþingið veigamikið skref í þá
átt. Þátttakendur fögnuðu þessu og töldu að það myndi styrkja
Hveragerði, bæði inn á við og út á við. Fram komu ýmsar
hugmyndir um leiðir til að bæta upplýsingastreymi frá bæjarstjórn
til íbúa og um formlegan samráðsvettvang.
Ímynd
Á íbúaþinginu var lögð áhersla á að byggja upp jákvæða
ímynd af Hveragerði. Þar er fyrst og fremst vísað til
landsfjölmiðla, en almennt var talið að jákvæð umfjöllun þar
gæti jafnframt skilað jákvæðum árangri inn á við, meðal
íbúanna sjálfra. Helst var nefnt að bærinn gæti staðið fyrir
reglulegum blaðamannafundum og gerði sem mest af því að senda
fréttir frá bænum, með sérstaka áherslu á jákvæð málefni.
Upplýsingastreymi frá bæjarstjórn til íbúa
Það sem þátttakendur töldu helst koma til greina til að bæta og
auka upplýsingastreymi frá bæjarstjórn, var að nýta heimasíðuna
enn betur og að útvarpa bæjarstjórnarfundum.
Formlegar samráðsleiðir
Ein af helstu niðurstöðum hópsins sem fjallaði um samráð og
næstu skref, var að það myndi styrkja samskipti íbúa og
bæjaryfirvalda ef haldinn væri sameiginlegur stefnumótunarfundur,
með fulltrúum bæjaryfirvalda, stofnana ríkisins í bænum,
félagasamtaka og fyrirtækja. Slíkur fundur ætti jafnframt að vera
opinn öllum íbúum. Heppileg tímasetning væri fyrir gerð
fjárhagsáætlunar, þannig að hann gæti verið efniviður við
forgangsröðun verkefna.
Bent var á að þjónustusamningar sem sveitarfélagið áformar að
gera við félagasamtök, bjóði upp á tækifæri til að virkja
félögin í ýmis jákvæð verkefni fyrir samfélagið og að
sjálfsagt væri að nýta það.
Einnig mætti efna til samráðsfunda um tiltekin málefni, með
viðkomandi hagsmunaaðilum og opinna funda með íbúum, þar sem mál
væru tekin fyrir almennt.
Þá var nefndur sá möguleiki að láta gera kannanir meðal
íbúanna, um einstök málefni, eða koma upp aðgengilegum
hugmyndabanka.
Niðurstaðan var að um þetta þurfi að móta stefnu og taka upp
ákveðnar verklagsreglur.
Samskipti meðal íbúa
Íbúar gerðu ekki aðeins kröfur til bæjarstjórnar, heldur bentu
jafnframt á að þeir sjálfir gætu gert betur í að auka samheldni,
m.a. með óformlegum samkomum og uppákomum af ýmsu tagi. Meðal
annars kom fram sú hugmynd að haldinn verði sérstakur kynningardagur
fyrir nýja íbúa í bænum, þar sem félagasamtök og aðrir kynni
starfsemi sína. Lagt var til að kannað verði hvort grundvöllur og
áhugi sé meðal Hvergerðinga, fyrir stofnun íbúasamtaka.
|