"Hveragerði hefur nú skipað sér í forystusveit sveitarfélaga sem vilja fara nýjar leiðir í stjórnun"

"Mér finnst æðislegt að bæjarstjórnin hafi staðið við að halda íbúaþing og vilji hlusta á okkur"

  Setning og tónlistaratriði

Íbúaþingið var haldið laugardaginn 5. apríl í Grunnskólanum í Hveragerði og stóð frá klukkan 9:30 til 16. Forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn Hjartarson, þingið og sagði þá meðal annars: "Samráð við íbúa auðveldar sveitarstjórnarmönnum að forgangsraða verkefnum. Í kjölfar til að mynda íbúaþinga ætti forgangsröðun verkefna þá frekar að vera í takt við vilja fólksins. Sjálfur hef ég hrifist af þessari aðferð, samráðsskipulagi, því hún gerir ráð fyrir virkari þátttöku íbúa. Íbúar eru hér í lykilhlutverki."

Þingið hófst með söng unglingakórs Grunnskólans, undir stjórn Kristínar Sigfúsdóttur

Í hádegishléinu var boðið upp á léttar veitingar við ljúfa tóna frá Tónlistarskóla Árnesinga í Hveragerði, undir stjórn Ian Wilkinson og Harðar Friðþjófssonar.

 

 


alta@alta.is