Vinnuhópur:  Umhverfið

Í hópnum sem fjallaði um umhverfið sátu um 40 - 50 manns. Miklar umræður urðu í hópnum um göngu- og reiðleiðir. Fólk var óánægt með að vegna skorts á reiðleiðum nýta hestamenn sér göngustígana og töldu þörf á úrbótum. Hópurinn vildi einnig að göngustígar bæjarins væru betur tengdir saman og gönguleiðir merktar. Þá voru allir sammála um að umgengni í bænum er víða slæm, t.d. í iðnaðarhverfinu sem er ásýnd bæjarins og huga þurfi að frágangi gatna, göngustíga og opinna svæða.

Aðgerðir:

  • Farið verði í allsherjar átak í umhverfismálum þar sem íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og bæjaryfirvöld taki höndum saman. Verkefnum verði forgangsraðað.
  • Reiðstígum verði fjölgað og þeir bættir. Þetta verði skoðað í tengslum við vinnu við nýtt aðalskipulag og unnið í samráði við hagsmunaaðila og Ölfus.
  • Haldið verði áfram uppbyggingu göngustíga samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi. Bekkjum verði fjölgað þar sem við á og merkingar bættar.
  • Mótuð verði stefna um uppbyggingu íþróttaaðstöðu og verkefnum forgangsraðað.
  • Hert verði á eftirliti með dýrahaldi og aðgerðum og eigendur kallaðir til ábyrgðar. Kannaðir verði möguleikar á að koma upp svæði þar sem hundar geti verið lausir.
  • Hægt verði á umferð m.a. með hraðahindrunum og vistgötum. Skólamörk verði lokað með keðju á annatímum.
  • Með þeirri tilfærslu ullarþvottastöðvar eða bættum mengunarvörnum sem er áformað mun Varmá verða hreinni. Hugað verði að betri frágangi mannvirkja meðfram ánni með samstilltu átaki íbúa.

 


alta@alta.is