Vinnuhópur:  Samveran

Þátttakendur í hópnum sem fjallaði um samveruna voru um 30. Fjörugar umræður sköpuðust um útivistarsvæðið undir Hamrinum og hvernig hægt væri að byggja það svæði upp. Þá var hópurinn sammála um að það vantaði félagsaðstöðu, ekki einungis fyrir ungt fólk, heldur aðstöðu þar sem ólíkir hópar af öllum aldri gætu komið saman til samveru og tómstundaiðkunar. Þá mætti bæta þá aðstöðu sem fyrir er.

Aðgerðir

  • Hafin verði markviss vinna við að byggja upp útivistar- og afþreyingarsvæði undir Hamrinum, tengt ullarþvottastöð.
  • Opnað verði hús fyrir unglinga til samveru og tómstunda og komið upp aðstöðu fyrir þau utandyra, t.d. hjólabrettarampi.
  • Reist verði fjölnota íþróttahús og fjármagn aukið til íþrótta- og æskulýðssstarfs. E.t.v. hægt að nýta ullarþvottastöðina.
  • Nýir íbúar verði boðnir velkomnir með kynningu á því félagsstarfi og uppákomum sem fram fara í bæjarfélaginu.
  • Félagsstarf í bænum verð samræmt og komið upp sameiginlegri aðstöðu fyrir ólíka hópa, gæti t.d. verið í ullarþvottastöðinni.
  • Fjölga atvinnutækifærum í bænum svo fjölskyldufólk þurfi ekki að sækja vinnu utan bæjarins.
  • Meira verði gert fyrir börnin og alla fjölskylduna, t.d. með fjölskylduvænni sundlaug, skautasvelli, húsdýragarði og skemmtunum.


alta@alta.is