Vinnuhópur:  Samráð og næstu skref

Í síðasta vinnuhópnum ræddu þátttakendur samráð og næstu skref, til að tryggja að íbúaþingið skilaði Hveragerðisbæ góðum árangri. Í hópnum voru um 30 þátttakendur. Taldi hópurinn mikilvægt að auka samráð milli íbúa og bæjaryfirvalda, t.d. með formlegum samráðsfundum og auknu upplýsingastreymi milli þessara hópa. En einnig þyrfti að auka samskipti á óformlegum vettvangi, t.d. með skemmtunum o.fl. Loks var lögð áhersla á auka þyrfti traust á milli íbúa og bæjaryfirvalda og ein leið til þess væri að vinna sýnileg verkefni strax að loknu íbúaþingi.

Niðurstöður

  • Aukið samráð bæjaryfirvalda við íbúa og meiri samvinna meðal íbúanna myndi styrkja Hveragerði og um leið bæta ímynd bæjarins. Um þetta þarf að móta stefnu og verklagsreglur.
  • Bæta þarf upplýsingastreymi frá bæjaryfirvöldum til íbúa, t.d. með heimasíðunni, blaðamannafundum og að útvarpa bæjarstjórnarfundum.
  • Samráð með formlegum hætti getur t.d. verið kannanir og samráðsfundir, m.a. með hagsmunaaðilum um tiltekin mál.
  • Haldinn verði sameiginlegur "stefnumótunarfundur" allra hagsmunaaðila árlega, þ.e. bæjaryfirvalda, stofnana ríkis í bænum, félagasamtaka, fyrirtækja og opinn íbúum.
  • Þjónustusamningar sem sveitarfélagið áformar að gera við félagasamtök, bjóða upp á tækifæri til að virkja félögin í ýmis jákvæð verkefni fyrir samfélagið.
  • Kannaður verður grundvöllur og áhugi fyrir stofnun íbúasamtaka.
  • Samskipti og samvera íbúa á óformlegum vettvangi aukist.
  • Íbúaþing þarf að skila sýnilegum árangri til að fólk sé tilbúið til að vera virkt og traust milli íbúa og bæjaryfirvalda byggist upp.
  • Verði ullarþvottastöðin flutt, er þar sóknarfæri fyrir bæinn.
  • Sýnilegt verkefni sem fyrst; Hamarinn!


alta@alta.is