





|
Skipulagshópur: Heilsu- og útivistarbærinn Hveragerði
Í hópnum sem settist að borði og skoðaði heilsu- og
útivistarbæinn Hveragerði voru 10 manns. Umræðurnar í hópnum
snéru mikið að því að bæta ímynd Hveragerðis sem heilsubæjar.
T.d. þyrfti að bæta frágang göngustíga, fjölga stígum og
jafnframt tengja saman þá sem í net. Þá stakk hópurinn upp á
því að merkja gönguleiðir og gefa þeim nafn, e.o.
"Vetrarbrautina", samtengda stíga sem eru upphitaðir og
því göngufærir allan ársins hring. Þá stakk hópurinn upp á
ýmsum fleiri útivistar- og tómstundamöguleikum, baðaðstöðu við
Baulu og víxlböðum á hverasvæðinu. Sú hugmynd kom fram að gefa
gömlum gróðurhúsum nýtt líf og hafa þar ýmsa
tómstundaaðstöðu.



|