Skipulagshópur unglinga

Á þinginu var unnið með skipulagshóp unglinga. Í honum tóku þátt 6 ungmenni úr 10. bekk Grunnskólans. Umræðurnar snérust mikið um aðstöðu unglinga til að stunda sem fjölbreyttasta afþreyingu, t.d. að bæta og fjölga litlum körfuboltavöllum, koma upp hjólabrettarampi og skautasvelli. Einnig var rætt mikið um aðstöðu þeirra í félagsmiðstöðinni, sem væri ágæt en ýmislegt þyrfti að laga, t.d. salerni. Annars væri húsnæðið gott. Þau bentu á að það vantaði aðstöðu fyrir 16 - 20 ára. Þá vörpuðu þau fram þeirri hugmynd að gera mætti skýli eða aðstöðu til að klæða sig við Baulu, því oft væru unglingar að leika sér þar í Varmánni og jafnvel mætti setja upp aðstöðu fyrir kajaka ofar í ánni.


alta@alta.is