Hugmyndir 5. bekkjar Grunnskólans í Hveragerði

Unnið var með börnum úr 5-H og 5-Ö í Grunnskólanum. Börnin voru spurð að því hvað þeim þætti gott við að búa í Hveragerði og hvað þeim þætti ekki nógu gott eða vildu hafa betra. Börnin komu með ýmsar hugmyndir og voru sammála um að gott væri að búa í Hveragerði. Þau vildu þó ýmsar úrbætur, þá helst að fá gervigrasvöll, stærra íþróttahús og körfuboltavelli. Þau vildu einnig fá rennibraut og leiktæki í sundlaugina.

Hvað er gott við að búa í Hveragerði?

  • Af því að það er svo rólegt í Hveragerði en svo mikil umferð í Reykjavík.
  • Það er stutt í allt því að bærinn er ekki svo stór, við getum labbað allt sem við þurfum að fara.
  • Það er góð sundlaug og það er ólympíustærð á henni.
  • Fólkið er skemmtilegt út af því að við þekkjumst svo vel.
  • Fótboltavöllurinn undir Hamrinum er mjög góður út að því að hann er svo langur og breiður og gott skjól af Hamrinum.

Hverju mætti breyta?

  • Engu, það þarf ekkert endilega, þetta er frábær lítill bær.
  • Fá stærra íþróttahús.
  • Gera gervigrasvöll.
  • Það vantar bíó, BT búð og góða fatabúð.
  • Það mætti setja rennibraut við sundlaugina.

Hvað myndi ég gera ef ég mætti ráða

  • Við viljum bíó í Hveragerði, því það er vesen að keyra í bæinn og sumir eiga ekki bíl.
  • Stærri sundlaug með rennibraut og stökkbretti.
  • Stækka íþróttahúsið og setja gryfju þangað.
  • Setja tívolí, hjólastíga, körfuboltavöll og gera handboltavöll.
  • Láta góðan gervigrasvöll og hann á að vera stór.

 


alta@alta.is