





|
Hugmyndir 9. bekkjar Grunnskólans í Hveragerði
Allt unglingastig Grunnskólans vann hugmyndavinnu fyrir
íbúaþingið, en þau veltu fyrir sér kostum og göllum Hveragerðis
og hverjir væru draumarnir. Fulltrúi 9. bekkja kynnti helstu
niðurstöður á íbúaþinginu. Unglingarnir voru jákvæðir í garð
Hveragerðis og ánægðir með að búið væri að opna
félagsmiðstöðina aftur. En þau vildu þó að aðstaða til
ýmissar tómstundaiðkunar væri bætt, t.d. með bættum boltavöllum
og línuskauta- og hjólabrettasvæði.
Kostir:
- Skólinn okkar er stór og aðbúnaður góður. Við höfum nýja
skólastofu, raungreinastofu og síðast en ekki síst
heimilisfræðistofu.
- Nemendur fá verkefni við sitt hæfi, samskipti við kennara og
starfsfólk í fínu lagi.
- Innan bæjar eru stuttar vegalengdir, umferð er frekar lítil og
örskot til Reykjavíkur.
- Það er búið að opna félagsmiðstöðina eftir margra
mánaða hlé.
- Umhverfið og náttúran í Hveragerði er mjög falleg. Hér eru
margar náttúrulífsperlur.
Gallar:
- Einn stærsti gallinn í Hveragerði er sá að íþróttahúsið
er alltof lítið! Það annar engan veginn þeirri eftirspurn sem
er eftir tímum í húsinu.
- Enginn gervigrasvöllur.
- Lélegir körfuboltavellir.
- Íþróttastarfið líður fyrir það að aðstaðan er ekki
nógu góð. Hér er ekki hægt að stunda handbolta eða frjálsar
íþróttir.
- Hér er ekkert línuskauta- og hjólabrettasvæði. Á þannig
svæði væri hægt að stunda street-hokký.
Draumar:
- Yfirbyggður gervigrasvöllur.
- Gamla hótelið notað undir félagsstarf unglinga.
- Stækkun á íþróttahúsinu og þar komið upp aðstöðu fyrir
frjálsar íþróttir og handbolta.
- Að sett verði upp rennibraut og leiktæki í sundlauginni í
Laugaskarði.
- Að hanna og skipuleggja línuskauta- og hjólabrettasvæði með
rampi og mörkum til að spila streethokký.


|