Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

Alta er ráðgjafarfyrirtæki  sem sérhæfir sig í skipulagsmálum, umhverfismálum, stefnumótun og verkefnisstjórn.

HJÁ ALTA

er þekking og reynsla varðandi
umhverfi, verndun þess og nýtingu,
skipulag byggðar og landnotkun og ekki síst
samfélag þess fólks sem þar lifir og starfar.
Þátttaka almennings er sífellt mikilvægari í
stefnumótun, sem ásamt markvissri
verkefnisstjórn tryggir góðan
árangur.

Sjálfbær þróun, í víðum skilningi, er leiðarljósið.

 

VIÐ VILJUM

Byggja ráðgjöf okkar á því að virðing fyrir verðmætum, samfélagi og umhverfi leiði til bestu lausnar fyrir viðskiptavininn. Við nálgumst verkefni okkar á heildstæðan hátt og vinnum með viðskiptavinum, hagsmunaaðilum og fagfólki til að ná betri árangri.

Vera góðir samstarfsaðilar. Við leggjum áherslu á traust og heiðarleika í öllum samskiptum. Ábyrg, sjálfstæð og markviss vinnubrögð einkenna allt okkar starf.

Hafa framúrskarandi starfsfólk sem hefur breiða þekkingu og áhuga á að vera drifkraftur jákvæðra breytinga í samfélaginu. Frjótt andrúmsloft og gott vinnuumhverfi geri Alta að eftirsóttum vinnustað fyrir slíkt starfsfólk.