Alta - Skipulag umhverfi stefnumótun verkefnastjórn

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size


Hjá Alta er sjálfbær þróun leiðarljósið.

Hreint fær umhverfisviðurkenningu Kópavogsbæjar
2011-09-06
Alta óskar ræstingaþjónustunni Hreint ehf. innilega til hamingju með umhverfisviðurkenningu Kópavogsbæjar 2011 fyrirframlag sitt til umhverfis og samfélags. Sjá nánar hér.

Hreint fékk norræna umhverfismerkið Svaninn í júní 2010 fyrir reglulegar ræstingar. Alta aðstoðaði við undirbúning vottunarinnar. Áhersla var lögð á að láta umhverfisstarfið falla inn í allt daglegt starf. Samhliða var byggt upp gæðakerfi sem skerpir á vinnubrögðum og tryggir stöðugar umbætur. Framúrskarandi árangur hefur náðst í umhverfis- og gæðamálum. Hér eru dæmi um árangur Hreint árið 2010 miðað við árið 2009.

  • Efnanotkun minnkaði um 26% fyrir hvern ræstan fermetra sem jafngilti rúmlega 2500 lítrum af ræstiefnum. Við reglulegar ræstingar eru notaðar þrjár tegundir af ræstiefnum.
  • Eldsneytisnotkun minnkaði um 9% fyrir hvern ræstan fermetra, sem jafngildir nærri 1000 lítrum af eldsneyti.
  • Plastpokanotkun minnkaði um 37% fyrir hvern ræstan fermetra. Rúmlega 600 kg minna af plasti lenti í sorptunnum.
  • Umhverfismerkt ræstiefni eru nær eingöngu notuð við reglulegar ræstingar, en hlutfall þeirra jókst úr 2% í 93%.
  • Ánægja viðskiptavina Hreint jókst um 8% samkvæmt þjónustukönnun og 73% viðskiptavina töldu Svansvottunina skipta þá miklu máli.
  • Umhverfisaðgerðir skiluðu sér í fjárhagslegum ávinningi. Sem dæmi má nefna að sparnaður vegna minni efnanotkunar og eldsneytiseyðslu er um 500.000 kr á ári.

Hreint sýnir með þessu hvernig meðalstórt íslenskt fyrirtæki getur innleitt nýja starfshætti í umhverfismálum, samþætt þá öðrum daglegum verkefnum og náð framúrskarandi árangri í formi betra umhverfis, vinnuumhverfis, sparnaðar og bættrar þjónustu sem skilar sér í aukinni ánægju viðskiptavina.

 
AddThis Social Bookmark Button