Alta - Skipulag umhverfi stefnumótun verkefnastjórn

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size


Alta notar skilvirka fjarfunda- og hópvinnutækni

Umhverfismálin á dagskrá hjá ÁTVR
2011-09-21

ÁTVR hefur um nokkurra ára skeið unnið að umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð. ÁTVR hefur verið öðrum til fyrirmyndar og nægir þar að benda á úrgangsmálin, tilraunir með verslunarpoka, aukið framboð á lífrænt ræktuðum drykkjum og umfjöllun um umhverfismál, m.a. í ársskýrslum.

Á vormánuðum aðstoðaði Alta vaskan hóp hjá ÁTVR sem falið var að meta skipulega áhrif fyrirtækisins á umhverfið, endurskoða umhverfisstefnu fyrirtækisins og setja markmið og aðgerðir í umhverfismálum. Þýðingarmestu umhverfisþættir í starfsemi ÁTVR snúa að úrgangsmálum, flutningum/dreifingu og innkaupum á vöru og þjónustu. Einhverjir hafa orðið varir við smekklega fjölnota innkaupapoka sem seldust upp hjá ÁTVR í sumar. Sala þeirra var ein af aðgerðunum sem hópurinn lagði til.

Spennandi verður að fylgjast með umhverfisstarfi ÁTVR í framtíðinni!

 

 
AddThis Social Bookmark Button