Hjá Alta starfar samhentur hópur |
| Vistvæn útboð Reykjavíkurborgar vekja alþjóðlega athygli |
| 2011-10-26 |
|
Útboð Reykjavíkurborgar á vistvænum ræstingum hafa hlotið alþjóðlega athygli sem gott dæmi um hvernig opinberir aðilar geta stuðlað að aukinni sjálfbærni og um leið náð fram umtalsverðum sparnaði. Reykjavíkurborg skrifaði nýlega samantekt ("case study") um útboðin og árangur þeirra með aðstoð Alta. Samantektin var skrifuð að beiðni ICLEI sem gott dæmi um innleiðingu vistvænna innkaupa hjá sveitarfélagi og verður hún birt í gögnum sem kynnt verða á alþjóðlegu ráðstefnunni Ríó +20 á næsta ári. Í tveimur ræstingarútboðum á vegum Reykjavíkurborgar árið 2009 voru sett skýr umhverfisskilyrði m.a. um efnanotkun og gefin stig ef þjónustan var umhverfisvottuð. Útboðin byggðu á ítarlegri þarfagreiningu í samráði við notendur. Árangur útboðanna var eftirfarandi:
Þessi árangur Reykjavíkurborgar er svo sannarlega hvatning fyrir opinbera aðila að stunda vistvæn innkaup, meðal annars með útboðum sem byggja á góðri þarfagreiningu og skýrum umhverfisskilyrðum (sjá www.vinn.is). Innkaupamáttur opinberra aðila er mikill og með þessum hætti geta þeir stuðlað að betra umhverfi, sparnaði og eflingu græns hagkerfis á Íslandi. Myndin sýnir fjölda Svansvottana á Íslandi á árunum 2000 - sept. 2011, bæði heildarfjölda og fjölda vottana fyrir ræstingarþjónustur.
|