Hjá Alta starfar samhentur hópur |
| Sjálfbær vatnsbúskapur vegna Urriðavatns - myndband |
| 2011-11-08 |
|
Í Urriðaholti í Garðabæ hafa verið farnar nýstárlegar leiðir hérlendis við mótun byggðar meðal annars með áherslu á verndun lífríkis og gæða Urriðavatns. Þessar leiðir eru orðnar ríkjandi við þróun og uppbyggingu nýrrar byggðar víða erlendis en hafa ekki verið nýttar hér á landi áður. Hér er um að ræða svokallaðan sjálfbæran vatnsbúskap (e. sustainable hydrology eða sustainable drainage system), stundum kallaðar sjálfbærar ofanvatnslausnir. Viðhald vatnsbúskaparins í Urriðavatni er afar mikilvægt fyrir byggðina í Urriðaholti þar sem Urriðavatn, ásamt Búrfellshrauni, mynda aðlaðandi umgjörð um byggðina. Urriðavatn er sérlega gróskumikið og lífríkt vatn með fjölbreyttum gróðri og smádýralífi á íslenskan mælikvarða. Þar er einnig tiltölulega mikið af urriða miðað við vötn af þessari stærð, hornsíli og auðugt fuglalíf. Alta hefur haldið utan um vinnu við skipulags- og umhverfismál í Urriðaholtinu frá upphafi. Nú höfum við, ásamt Herborgu Árnadóttur, gert myndband fyrir Urriðaholt ehf þar sem lýst er hugmyndafræðinni á bak við sjálfbæran vatnsbúskap og hvernig skipulagning við uppbyggingu byggðarinnar í Urriðaholti hefur tekið mið af henni. Nánari upplýsingar um byggðina í Urriðaholti er að finna á www.urridaholt.is.
|