|
2011-11-14 |
|
Um nokkurt skeið hefur verið unnið að deiliskipulagi fyrir Garðahverfi á Álftanesi. Markmið þess er að þar verði friðarstaður þar sem njóta megi útivistar og kyrrðar samhliða varðveislu menningarsögulegra minja, búsetulandslags og náttúru. Deiliskipulagið var unnið undir forystu skipulagsnefndar Garðabæjar, en Garðafélagið áhugamannafélag um Garðahverfi hefur stutt þessa vinnu. Alta hefur haft umsjón með deiliskipulagsgerðinni. Sjá nánar á gardahverfi.alta.is
|