Hafðu samband

Beinn sími: 582 5006

Farsími: 898 6605

Tölvupóstfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Björg Ágústsdóttir

Björg útskrifaðist frá Háskóla Íslands 1994 með embættispróf í lögfræði. Hún lauk dipl.námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá Endurmenntun HÍ 1999 og mastersnámi í verkefnastjórnun (MPM) við verkfræðideild HÍ 2008. Björg hefur alþjóðlega C-vottun verkefnastjórnunar (Certified Project Manager IPMA, level C) sem gefin er út af Verkefnastjórnunarfélagi Íslands og International Project Management Assocition (IPMA).
Björg hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum, en hún var sveitarstjóri/bæjarstjóri í Grundarfirði í 11 ár, til ársins 2006. Áður starfaði Björg sem löglærður fulltrúi sýslumannsins í Stykkishólmi. Hún hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum á vettvangi sveitarstjórna- og hafnamála. Hún hefur setið í nefndum á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, í stjórn og nefndum Hafnasambands sveitarfélaga, í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga, stjórn Háskólans á Bifröst, í heilbrigðisnefnd, stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, nefndum um byggðamál, málefni fatlaðra, sorpmál o.fl. Hún var formaður undirbúningsnefndar um framhaldsskóla á Snæfellsnesi og framkvæmdastjóri Jeratúns ehf. sem byggði og á húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Björg hefur undanfarin misseri kennt stefnumótun á styttri og lengri námskeiðum.

Björg býr í Grundarfirði og stýrir útibúi Alta þar í bæ. Frístundum er varið í samveru með fjölskyldunni, sem finnst sérlega gaman að ferðast.

 

Upp