Hafðu samband

Beinn sími: 582 5018

Farsími: 892 2698

Tölvupóstfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hrafnkell Proppé

Hrafnkell lauk MSc prófi í skipulagsfræðum frá Álaborgarháskóla árið 2009. Áður hafði hann lokið BSc. námi í umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands, 2006 og námi í skrúðgarðyrkju frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Hrafnkell hefur víðtæka reynslu af skipulagsvinnu og landslagsmótun og umhverfis- og skipulagsstörfum hjá sveitarfélögum. Hann hefur m.a. starfað sem garðyrkjustjóri, umhverfisfulltrúi og sem verkefnastjóri Staðardagskrár 21. Einnig hefur Hrafnkell starfað við ráðgjöf m.a. hjá verkfræðistofu við gerð útboðsgagna, verkeftirlit, skipulagsmál, landslagsmótun og hönnun lóða og opinna svæða.

Hjá Alta sinnir Hrafnkell einkum verkefnum tengdum skipulagsgerð, landslagsmótun, umhverfismati áætlana og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda. Auk þessa sinnir Hrafnkell stundakennslu á háskólastigi á sviði skipulags-, umhverfis og landslagsmála.

Hrafnkell nýtur þess að ferðast, stunda útivist, spila tónlist og lesa góðar bækur. Frítíma sínum finnst honum best varið með fjölskyldu og vinum.

 

Upp