Hafðu samband

Beinn sími: 582 5009

Farsími: 820 5671

Tölvupóstfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hulda Steingrímsdóttir

Hulda lauk námi í líffræði við Háskóla Íslands árið 1996 og meistaragráðu í umhverfisstjórnun við Handelshögskolan, Göteborgs Universitet, Svíþjóð árið 2007 með áherslu á samfélagsábyrgð fyrirtækja. Hulda hefur m.a. starfað við ýmsar rannsóknir á sviði umhverfismála og sem verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 hjá Hafnarfjarðarbæ.

Helstu viðfangsefni Huldu hjá Alta eru á sviði umhverfismála og samfélagsábyrgðar fyrirtækja, m.a. ISO 26000. Umhverfisvottanir fyrirtækja (m.a. Svanurinn), umhverfisstjórnunarkerfi s.s. ISO 14001, stefnumótun í umhverfismálum, hagsmunaaðilagreiningar, vistvæn innkaup, grænt bókhald, úttektir á sviði umhverfismála, miðlun upplýsinga og fræðsla um umhverfismál eru dæmi um verkefni Huldu.

Í frítíma sínum stundar Hulda ýmis konar útiveru með fjölskyldu og vinum. Bókalestur, matur og nýting náttúruauðlinda til heimilishalds skipar einnig góðan sess hjá Huldu.

 

 

Upp