Hjá Alta starfar samhentur hópur |
| Aðalskipulag Fljótsdalshéraðs staðfest |
| 2009-12-21 |
|
Skipaður var sérstakur stýrihópur til að annast mótun skipulagsins og sátu í honum Árni Kristinsson, formaður, Baldur Pálsson, Magnús Jónasson, Eyþór Elíasson og Gylfi Hallbjörnsson, ásamt þremur fulltrúum úr bæjarráði, Jónínu Rós Guðmundsdóttur, Guðmundi Ólafssyni og Birni Ármanni Ólafssyni. Fundi stýrihóps sátu einnig Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri, Ómar Þröstur Björgólfsson, skipulags- og byggingarfulltrúi og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, héraðsfulltrúi. Ákveðið var að móta atvinnustefnu og skilgreina fjórðu stoðina í stefnu Fljótsdalshéraðs, þ.e. staðardagskrá 21, jafnframt vinnu við aðalskipulagið. Stefna Fljótadalshérðas ásamt þessum nýju stefnuþáttum reyndust mikilvægur grunnur fyrir aðalskipulagið. Samvinna við íbúa var með ýmsum hætti, aðallega á fundum víðsvegar um sveitarfélagið þar sem aflað var hugmynda og sjónarmiða og tillögur kynntar. Þá var aflað upplýsinga um framtíðaráform landeigenda með sérstakri könnun, dreifibréf sent og haldið málþing um sérstöðu og framtíðarþróun í sveitarfélaginu. Allt myndaði þetta góðan efnivið í skipulagið. Eins og gefur að skilja voru ólík sjónarmið um ýmsa þætti skipulagsins, t.d. um þróun byggðar og legu vega. Nýja skipulagið felur í sér töluverða breytingu frá því gamla, t.d. með áherslu á ný byggingarsvæði norðan núverandi byggðar á Egilsstöðum, lengingu flugbrautar, nýju brúarstæði og vegi um Melshorn. Meðal áhersluatriða má nefna verndun landbúnaðarlands. Í október 2008 var haldin sýning á þeim drögum sem þá lágu fyrir og bárust allmargar gagnlegar ábendingar frá íbúum og hagsmunaaðilum. Tillagan var síðan samþykkt til auglýsingar í nóvember 2008. Aftur bárust ábendingar og athugasemdir sem fjallað var um vorið 2009 og skipulagstillagan síðan samþykkt þann 24. júní 2009. Á myndinn eru, frá vinstri: Árni Geirsson, Svandís Svavarsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Soffía Lárusdóttir og Salvör Jónsdóttir
|