Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size


Hjá Alta er sjálfbær þróun leiðarljósið.

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæ Akureyrar
2010-02-05

Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa nú um nokkurt skeið unnið að nýrri stefnumótun til endurreisnar miðbæ Akureyrar. Bæjarstjórn samþykkti á fundi 2. febrúar 2010 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi miðbæjar - austurhluta, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Deiliskipulagið er afrakstur viðamikillar vinnu sem hófst 2004 þegar sjáflseignarstofnunin Akureyri í öndvegi stóð fyrir víðtæku samráði við íbúa Akureyrar og atvinnurekendur í miðbænum, um hvað mætti betur fara. Hugmyndir og áherslur í deiliskipulaginu byggja meðal annars á niðurstöðum samráðsins, þar sem skilaboðin voru þau að snúa þyrfti við neikvæðri þróun miðbæjarins. Bærinn þyrfti að vera skjólmeiri, grænni og litríkari, fjölga þyrfti íbúðum og auka þjónustu. Miðbærinn eigi einnig að vera líflegur vettvangur mannlífs og skemmtunar. Graeme Massie Architects nýttu þessar hugmyndir í tillögu sem vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri hugmyndasamkeppninni um miðbæinn, sem  Akureyri í öndvegi stóð fyrir í kjölfarið. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa síðan unnið úr þessum hugmyndum og er það deiliskipulag sem nú er kynnt unnið í samráði við verðlaunatillöguhafa. Graeme Massie Architects brjóta í raun upp miðbæinn og snúa honum austur- vestur. Sjórinn er dreginn aftur inn í miðbæinn með síkinu um nýtt sund, Eyrarsund, sem liggur frá Bótinni að Skipagötu og þaðan áfram að gamla Apótekinu með tjörn eða vatnasvæði. Við síkið verða aðlaðandi og eftirsótt svæði fyrir gangandi vegfarendur. Síkið liggur í sömu stefnu og Skátagil og verður í skjóli fyrir ríkjandi vindáttum. Þannig verða beggja vegna þess skjólsælir og sólríkir staðir. Kaffihús, veitingastaðir og önnur þjónusta við síkissvæðið munu laða að íbúa og ferðamenn og skapa lifandi götulíf og afþreyingu. Með því að draga sjóinn aftur inn að hjarta bæjarins tengir síkið  Ráðhústorg og Hafnarstræti við Pollinn.

Með deiliskipulaginu er sett fram skýr og heildstæð framtíðarsýn fyrir kjarna miðbæjarins sem skapar nauðsynlega umgjörð og festu fyrir ákvarðanir um einstakar fjárfestingar og byggingarframkvæmdir.  Þannig verði tryggt að átak allra sem að uppbyggingu miðbæjarins muni koma verði samstillt og markvisst. Alta hefur verkstýrt þessari vinnu frá upphafi, fyrst í samvinnu við Akureyri í öndvegi og síðan undir leiðsögn Akureyrarbæjar. Sjá hér deiliskipulagstillöguna í heild.