Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size


Hjá Alta er sjálfbær þróun leiðarljósið.

Þjónusta

Hvaða árangri þarft þú að ná?

Í þjónustu okkar við verkkaupa njótum við góðs af þeirri faglegu breidd og reynslu sem starfsfólk Alta býr yfir. Leiðarljósið er ávallt það að góður árangur náist á sem einfaldastan og skilvirkastan hátt. Oftast er um að ræða breytingar á starfsháttum eða umhverfi þar sem taka þarf tillit til fjölmargra ólíkra sjónarmiða, tryggja að vel og vandlega sé að verki staðið og að ávinningurinn sé skýr. Þetta krefst ekki aðeins vandaðrar tæknilegrar útfærslu heldur einnig skilvirkra samskipta við þá sem hlut eiga að máli.

Við hjá Alta leggjum áherslu á það að skilgreina vel þann árangur sem á að ná og finna þá sérþekkingu sem þörf er á. Oft snúa verkefnin að almenningi eða hafa áhrif á hagsmuni stórra hópa. Þá er mikilvægt að hlusta vel eftir þörfum þeirra og ábendingum.