|
| Hafnarsamkeppnin: Graeme Massie og Alta í 1. sæti |
| 2009-12-11 |
|
Höfundar setja fram kraftmikla, myndræna og formfasta tillögu sem við nánari skoðun rúmar mikinn sveigjanleika til aðlögunar við núverandi byggð og skipulagshugmyndir. Lögð er áhersla á að göng undir hafnarmynnið losi umferð frá Geirsgötu / Mýrargötu þannig að miðbærinn fái að „fljóta“ niður að hafnarsvæðinu. Með því ná höfundar að uppfylla annað af meginmarkmiðum samkeppninnar – að styrkja tengsl miðbæjar og hafnar. Tillögunni er lýst ítarlega á sérstökum vef: www.alta.is/hafnarsamkeppnin Umsögn dómnefndar í heild er að finna hér. |