Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

Hjá Alta starfar samhentur hópur 
með óvenjulega breiða þekkingu og reynslu.

Sjávarfang í sjávarbyggð, hvar liggja tækifærin?
2009-12-09

krokar.pngÞann 7. desember 2009 var haldið málþing í Klifi, Snæfellsbæ með yfirskriftinni
Sjávarfang í sjávarbyggð, hvar liggja tækifærin? Fyrir málþinginu stóð Átthagastofa Snæfellsbæjar sem fer með verkefnisstjórn svokallaðs Krókaverkefnis og var málþingið liður í að styðja við þá sjávartengdu vöruþróun sem unnið er að í því verkefni. Málþingið naut stuðnings frá Gáttum, SSV - þróun og ráðgjöf og Snæfellsbæ. Um stjórn málþingsins, umræðna og samantekt niðurstaðna sá Björg Ágústsdóttir hjá ráðgjafarfyrirtækinu ALTA í samvinnu við boðendur málþingsins.

 

Í fréttatilkynningu Átthagastofu segir að um 20 þátttakendur hafi tekið þátt í málþinginu, fulltrúar útgerða, fiskverkenda og fiskmarkaðar, auk aðila úr veitinga- og ferðaþjónustu á Snæfellsnesi, m.a. þátttakendur úr Krókaverkefninu, og fulltrúar bæjarfélaga og stoðfyrirtækja atvinnulífsins. Markmið málþingsins voru meðal annars að hvetja til vöruþróunar og aukins framboðs á fiskafurðum af heimaslóð á Snæfellsnesi með því að koma á tengslum veitingamanna og fiskverkenda á Snæfellsnesi.

Á málþinginu kynnti Kristín Björg Árnadóttir, verkefnastjóri Átthagastofu Snæfellsbæjar Krókaverkefnið og sagði frá aðdraganda málþingsins. Guðmundur Heiðar Gunnarsson stöðvarstjóri MATÍS Höfn í Hornafirði flutti erindi sem hann nefndi Hvar liggja tækifærin – fiskur í nærumhverfi. Þar sagði hann m.a. frá viðleitni heimamanna á Hornafirði til að auka framboð og bæta aðgengi að ferskum fiski á heimaslóð og kynnti Matarsmiðju Matís þar sem frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum býðst að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi. Torfi Jóhannesson framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Vesturlands kynnti matarmerki Vesturlands (local food) en settar hafa verið reglur um notkun merkisins sem matvælaframleiðendur og veitingastaðir geta sótt um að nota.

Að erindum loknum ræddu þátttakendur um tækifæri Snæfellinga til að nýta betur sjávarfang á heimaslóð og hvernig stuðla mætti að frekari þróun í þeim efnum. Aðstandendur málþingsins munu í framhaldinu vinna frekar úr þeim hugmyndum sem fram komu, með þátttakendum í Krókaverkefninu og öðrum áhugasömum.

Upplýsingar um málþingið, erindi sem þar voru flutt og niðurstöður þess eru birtar á sérstökum vef sem er aðgengilegur öllum.