Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size


Hjá Alta er sjálfbær þróun leiðarljósið.

Hvernig minnkum við umhverfisáhrif ferðalaga?
2009-11-11

DSC_0568.JPGLeitast var við að svara þessari spurningu á Umhverfisdegi Farfugla þann 30. október s.l.,í tilefni af 70 ára afmæli Bandalags íslenskra farfugla. Á Umhverfisdegi Farfugla var fjallað um áhrif ferðalaga á umhverfið og leiðir sem fara má til að draga úr þeim, bæði af hálfu ferðmanna og ferðaþjónustuaðila. Uppátækið var enn ein rós í hnappagat íslenskra farfugla sem hafa um langt skeið verið leiðandi í umhverfisstarfi hér á landi; með því að setja sér lifandi stefnu sem nú er 10 ára, hafa fengið Svaninn fyrir heimilið í Laugardal og eru að undirbúa Svansvottun fyrir nýtt farfuglaheimili á Vesturgötu, einnig með því að þróa Grænu farfuglaheimlin, eigið kerfi fyrir
umhverfisstarf farfuglaheimila og ýmir önnur óbein áhrif sem þau hafa haft með starfi sínu.

Á Umhverfisdeginum voru haldin erindi. Hulda frá Alta ræddi umhverfisáhrif ferðalaga, Sigríður Ólafsdóttir veitti innsýn í starf Farfuglaheimilsins í Laugardal, Pálmar Sigurðsson veitti innsýn í starf Hópbíla og Jón Gauti Jónsson veitti innsýn í starf Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Einnig voru heillandi ferðasögur sagðar af Önnur Kristínu Þorsteindóttur sem var á meðal hirðingja í Mongólíu og Valdimar Harðarson sem fór á kajak um Jökulfirði.