|
| Starfsfólk |
|
Það er fjölbreyttur bakgrunnur og reynsla sem einkennir starfsmannahópinn hjá Alta. Þar að finna fólk með háskólagráður í jafn ólíkum greinum og verkfræði, lögfræði, skipulagsfræði, byggðarhönnun, landslagsarkitektúr, umhverfisfræði, umhverfisstjórnun, umhverfisskipulagi, líffræði, jarðfræði, landupplýsingafræði, verkefnisstjórnun og viðskiptafræði. Starfsreynslan er álíka margvísleg. Með þessa þekkingu og reynslu í farteskinu er hópurinn sérlega vel til þess fallinn að glíma við verkefni sem krefjast góðrar yfirsýnar, frumlegrar nálgunar og fagmennsku. Með því að smella ná nöfn starfsmannanna hér til hliðar má fræðast svolítið um hvern þeirra. Viltu vera með? Við hjá Alta viljum vita af góðu fólki sem hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur. Fyrirtækið hefur stækkað ört enda grípum við óhikað þau tækifæri sem gefast. Ef þú vilt að við vitum af þér, sendu þá ferilskrá og aðrar upplýsingar sem máli skipta til Halldóru Hreggviðsdóttur (halldora hjá alta.is). |