Alta ráðgjafarfyrirtæki

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size

Alta leggur metnað í góðan undirbúning 
og skilgreiningu verkefna

Fréttir
Golfvellir og umhverfismál
2010-09-03

Á vegum Golf environment organization (GEO) hefur undanfarin ár verið byggt upp  vandað umhverfisstjórnunarkerfi fyrir golfvelli. Uppfylli golfvellir ákveðnar kröfur er hægt að sækja um vottun á umhverfisstarfinu. Öll umgjörð og leiðbeiningar GEO eru fyrirtaksverkfæri til að efla og bæta umhverfismál golfvalla. Unnið er með nokkra málaflokka; náttúru, landslag og menningarminjar, vatnsnotkun, grassvæði, mengunarvarnir, úrgang, orku, fræðslu og vitund og tengsl við nærsamfélag. Tilgangurinn er að hugsa til langs tíma, bæta yfirsýn og notkun auðlinda, efla tengsl við nærsamfélagið og grípa til aðgerða sem koma umhverfi, heilsu og pyngju til góða. Mikilvægt er að umhverfisstarf sé einfalt og aðgengilegt fyrir gesti og starfsmenn, eins og Arnold Schwarzenegger leggur til.

Alta leiðbeinir íslenskum golfklúbbi sem mátar nú kröfur GEO. Áhugi golfvalla á skipulögðu umhverfisstarfi og raunar gæðastarfi einnig, eykst mjög í Evrópu og vinna æ fleiri vellir að því að fá vottun. Á nýliðinni vorráðstefnu SÍGÍ 2010, þar sem Alta ræddi umhverfisstarf golfvalla og kröfur GEO, var ljóst að áhugi golfvallastarfsmanna er einnig vakinn. Fróðlegt verður að fylgjast með þróun þessara mála hér á landi því hér er á ferðinni gott stjórntæki bæði hvað varðar gæði og umhverfismál.

 

 
Umhverfisstjórnun í rekstri Vatnajökulsþjóðgarðs
2010-07-28

Samhliða vinnu við Stjórnunar- og verndaráætlunVatnajökulsþjóðgarðs aðstoðaði Alta teymi þjóðgarðsins við að gera umhverfisúttekt á innra starfi. Þar voru kortlögð umhverfisáhrif í innra starfi þjóðgarðsins og rekstri honum tengdum auk þess sem mikilvægi umhverfisþátta var metið. Niðurstöðurnar gefa skýra mynd af þýðingarmiklum umhverfisþáttum og hvaða aðgerðir eru mikilvægastar til að stuðla að vistvænum rekstri þjóðgarðsins.

Við mótun Stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs var tekið mið af niðurstöðu umhverfisúttektarinnar. Mótun umhverfisstefnu fyrir innra starf þjóðgarðsins og starfsmarkmið henni tengd er þannig samofin Stjórnunar- og verndaráætluninni.

Sjá nánar á vef Vatnajökulsþjóðgarðs.

 

 
Varmadæla í Vestmannaeyjum?
2010-07-14

Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum og HS veitur, sem reka hitaveituna þar, hafa undanfarið verið að velta fyrir sér hagnýtingu varmdælu til að afla varmaorku fyrir veituna. Alta aðstoðaði við könnun á fýsileika hugmyndarinnar. Gert er ráð fyrir því að varminn sé tekinn úr sjó og fluttur yfir í vatnsrás hitaveitunnar en nú er varminn að mestu fenginn með rafhitun. Með hagnýtingu varmadælu má minnka raforkuþörf hitaveitunnar um helming en þá er miðað við að varmaafl frá varmadælunni sé um 6 MW og um 2 MW þurfi til að knýja dæluna. Það sem mestu ræður um hagkvæmni þessarar lausnar er verðið sem greitt er fyrir raforkuna en það er núna mjög lágt þar sem um ótryggt rafmagn er að ræða. Búast má við því að raforkuverð hækki, ekki síst ef Ísland tengist meginlandi Evrópu um sæstreng. Benda má á ýmsan óbeinan hag af notkun varmadælunnar, t.d. að raforka losnar til annarra þarfa og því minni þörf fyrir virkjanir. Hjá Nýsköpunarmiðstöð eru uppi hugmyndir um víðtæka notkun varmadæla á svæðum þar sem jarðhitavatn er ekki nægilega heitt, sjá hér.

 
Hreint fær Svansvottun
2010-07-05

Við hjá Alta óskum ræstingarþjónustunni Hreint innilega til hamingju með Svaninn, en í dag 25. júní 2010, afhenti Umhverfisstofnun þeim leyfi til að nota norræna umhverfismerkið Svaninn fyrir almennar ræstingar. Þau hjá Hreint hafa unnið afar gott starf og lagt mikla áherslu bæði á umhverfismálin og ekki síður gæðamálin við innleiðingu Svansins. Alta aðstoðaði þau við undirbúning vottunarinnar og hefur samstarfið verið einstaklega ánægjulegt. Á myndinni sést þegar Ari Þórðarson framkvæmdastjóri Hreint, tekur við Svansvottuninni úr hendi aðstoðarkonu umhverfisráðherra, sem er Hafdís Gísladóttir.

www.hreint.is

 
Móttökusvæði fyrir farþega skemmtiferðaskipa í Grundarfirði
2010-06-10

Nýlega var lokið við frágang á nýju móttökusvæði Grundarfjarðarhafnar fyrir farþega skemmtiferðaskipa. Alta aðstoðaði hafnarstjórn við frumhönnun svæðisins í vetur. Nokkrar breytingar urðu á hafnaraðstöðunni þegar nýr viðlegukantur, Miðgarður, var byggður en hann leysti af hólmi Litlu bryggju, sem var rifin. Þá myndaðist pláss fyrir flotbryggju og landgang fyrir skemmtiferðaskipagesti sem koma í land á léttabátum, þegar skip liggja fyrir ankerum. Móttökusvæðið nýtist bæði þessum gestum, sem og bæjarbúum og öðrum gestum þeirra.

Áhersla var lögð á að nýtt svæði félli vel að notkun og umferð á hafnarsvæðinu, m.a. að það tengdist aðliggjandi torgi eða áningarsvæði hafnarinnar, þannig að myndaðist gott samræmi. Auk þess var lögð áhersla á að umferðarflæði og fyrirkomulag rútustæða truflaði ekki aðra starfsemi á höfninni.

Alta skilaði inn tillögum í byrjun mars og af hálfu bæjarins var lokið við vinnuteikningar og frágang. Framkvæmdir fóru svo fram í apríl-maí.

Móttökusvæðið var vígt þann 18. maí sl. við hátíðlega athöfn nokkrum dögum áður en fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins heimsótti Grundarfjörð.

Sjá nánar frétt á vef Grundarfjarðarbæjar.

Myndin hér fyrir ofan er úr myndasafni Grundarfjarðarbæjar.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL