Til leigu fyrsta flokks atvinnuhúsnæði, 161 m2, á annarri hæð í Ármúla 32.
Allt húsnæðið er nýuppgert, vandað og fallegt. Vinnurımiğ er opiğ, meğ tveimur fundarherbergjum, şar sem annağ er tengt matarağstöğu.
Við endurbætur húsnæðisins var lögð áhersla á að skapa þægilegt vinnurými sem tekur tillit til heilsu og umhverfis. Notaðar eru bestu fáanlegar loftaplötur til að tryggja góða hljóðvist.
Á gólfum er olíuborinn korkur. Húsnæðið er bjart en með sólarvörn til að koma í veg fyrir óþægilega birtu og hitun. Óbein lýsing af bestu gerð.
Notaðir eru umhverfisvænir valkostir; byggingarefni, t.d. málning, gólfefni og loftaplötur (ofnæmisprófaðar) sem og umhverfisvænar lausnir, t.d. ljósastýring, hreyfiskynjarar, loftræsting og vatnssparandi klósett.Ljósleiðaratenging tryggir öflugt netsamband. Húsnæðið má aðlaga að þörfum leigjanda.
Hér eru nánari upplýsingar um umhverfisáherslur í húsnæðinu.
Hér er teikning þar sem fram kemur hugmynd um niðurröðun vinnustöðva.
Áhugasamir hafi samband við Halldóru Hreggviðsdóttur, halldora@alta.is, sími 582 5000.