top of page

Íbúasamráð við gerð þróunaráætlunar Keflavíkurflugvallar


Nú er í gangi alþjóðleg samkeppni við mótun þróunaráætlunarinnar. Alta hefur aðstoðað Kadeco við skipulag á víðtæku samráði við þá sem þar búa og starfa í tengslum við gerð hennar. Þannig fæst innsýn í tækifæri og áskoranir sem Suðurnesin standa frammi fyrir og taka þarf tillit til við mótun áætlunarinnar.


Hér liggja fyrir ábendingar úr víðtækri skoðanakönnun og frá ráðgjafaráði fulltrúa Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Heklunnar atvinnuþróunarfélags, hafnaryfirvalda, lögreglu og slökkviliðs. Flestir telja mikil tækifæri felast í nálægðinni við alþjóðaflugvöllinn og stórskipahöfn. Þar sé tækifæri til að auka enn frekar fjölbreytni vinnumarkaðarins. Íbúar taka í sama streng en voru almennt ánægðir með lífsgæði á svæðinu og mátu mikils nálægð við stórbrotna náttúru og hafið. Þeir vilja m.a. fjölga göngustígum og bæta tengingar á milli svæða og sjá fleiri tækifæri til afþreyinga s.s. íþróttaiðkunar og menningarviðburði.


Comments


bottom of page