Heildarsýn yfir þróun vestanverðs Kársness
- May 1
- 2 min read
Updated: May 4
Nýlega var staðfestur rammahluti aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes, sem Alta vann fyrir Kópavogsbæ. Vestanvert Kársnes er einstakt hverfi á besta stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Það býr yfir miklum styrkleikum og sérstöðu, sem skapa mikilvægan grunn fyrir nýja uppbyggingu, byggða á gömlum grunni. Á síðustu árum hefur þó nokkur uppbygging verið á svæðinu en með rammahlutanum er mótuð heildarsýn fyrir áframhaldandi þróun svæðisins.

Í rammahlutanum er sett fram heildarsýn fyrir svæðið, svokölluð skipulagshugmynd, sem verður nánar útfærð í deiliskipulagsáætlunum fyrir hvern reit. Við mótun byggðarinnar verður lögð áhersla á gæði byggðarinnar, gott aðgengi fyrir virka ferðamáta, vandaða hönnun og arkitektúr og sólrík, skjólgóð og gróðursæl útirými í fallegu umhverfi. Heildarsýnin og vönduð hönnun mun tryggja það að einstakir styrkleikar svæðisins njóti sín sem best.

Það eru fá svæði á höfuðborgarsvæðinu sem búa yfir jafn spennandi tækifærum til þróunar í dag og vestanvert Kársnes:
Það er mjög nálægt sjó og einstakri strandlengju og náttúru í Kópavogi og Fossvogi, með útsýni í átt að Álftanesi, Nauthólsvík, Reykjavík og fjallasýn yfir að Esju og Snæfellsnesjökli í fjarska.
Um leið er það í innan við 10 mínútna fjarlægð frá miðborg Reykjavíkur, hvort sem er akandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum, með tilkomu Borgarlínu og brúar yfir Fossvog.
Þar að auki býr svæðið yfir merkilegri sögu sem einn elsti hluti Kópavogsbæjar, með hafnarsvæði og eldri iðnaðarbyggingar, sem gefa því einstakan karakter.
Í fjórða lagi er Vestanvert Kársnes í jaðri rótgróinnar og eftirsóttrar íbúðarbyggðar með sterkan samfélagsanda, sem erfitt er að skapa frá grunni í nýrri byggð.
Leiðarljós fyrir uppbyggingu
Við gerð rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes var unnið með þessa styrkleika til þess að leggja grunn að aðlaðandi, fjölbreyttu, lifandi og einstöku hverfi. Leiðarljós rammahlutans snúast um að gera svæðið aðgengilegt fyrir alla ferðamáta, einstakt hverfi að búa í, eftirsóknarvert að heimsækja og að þar verði öflug blönduð byggð með atvinnustarfsemi.

Samráðsfundur, sem var haldinn snemma í skipulagsferlinu, var fjölsóttur og hafði mótandi áhrif á skipulagsgerðina. Einnig var opið hús í safnaðarheimili Kópavogskirkju þegar rammahlutinn var kynntur á vinnslustigi.

Skýringarmyndin hér fyrir neðan gefur hugmynd um fyrirkomulag og þéttleika byggðarinnar vestast á þróunarsvæðinu. Ekki er um eiginlega byggingarreiti að ræða, heldur aðeins tilraun til þess að máta tiltekinn þéttleika inn á reitina með gæði byggðar að leiðarljósi.









Comments