top of page

Hvers vegna blágrænar ofanvatnslausnir?

Sep 25
1 min read

Updated: Sep 28

Var umfjöllunarefni Halldóru hjá Alta á vel heppnuðu Blágrænu málþingi Reykjavíkurborgar í vikunni.


Ástæða fyrir innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna er ekki alls staðar sú sama. Í raun geta fjöldi mismunandi vandamála verið kveikjan að því að farið er af stað og oft er verið að slá margar flugur í einu höggi. Í Urriðaholti þurfti að bjarga Urriðavatni. Grundarfjarðarbær er að tvöfalda fráveitukerfi sitt og Reykjavíkurborg þarf að losna við ofanvatnið úr fráveitunni, til að draga úr kostnaði við hreinsun skólps.



Samhliða innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna verða bæir grænni og gróðursælli og heilnæmari. Vatnsgæði eru bætt, með hreinsun mengunar úr ofanvatninu. Það dregur úr hættu á flóðum vegna ofanvatns, og líffræðilegur fjölbreytileiki eykst í náttúrulegra borgarumhverfi. Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna er bæði mótvægisaðgerð og aðlögun að loftslagsbreytiongum.  Sjá hér myndband frá öllu málþinginu. Kynning Halldóru byrjar kl. 01:10 í myndbandinu.


Á málþinginu var fjöldi áhugaverðra kynninga um framgang LIFE-Icewater verkefnisins í Reykjavík. Þar var fjallað um bætt vatnsgæði í Vatnsmýrinni og Tjörninni og verkefni sem verið er að vinna að til að stuðla að því. Flóðavarnir í Kvosinni og innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna. Það verður gaman fyrir okkur öll að fylgjast með áfram og að taka þátt í að gera borgina blágrænni, náttúruríkari og heilnæmari.

 
 
 

Comments


Sími 582 5000

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

​

Kt. 630401-3130 

bottom of page