top of page

Mótun Akademíureitsins í Reykjanesbæ

Updated: 7 days ago

Alta er að aðstoða Reykjanesbæ við að byggja upp nýtt og lifandi miðsvæði á Akademíureit austan við Reykjaneshöllina. Vinnan felur í sér greiningu ásamt samráði sem fram fór á vinnufundi 29. apríl og svo með spurningakönnun til íbúa sem sett hefur verið í loftið á vef Reykjanesbæjar.


Samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila, sem þekkja svæðið best og koma til með að njóta afraksturs verkefnisins, er mikilvægur liður í vinnunni og hér á vef Reykjanesbæjar er áskorun til íbúa um að taka þátt í skoðanakönnun og benda á leiðir til að bæta enn mannlíf þar.



Í greiningu frá ALTA kemur fram að Akademíureiturinn er vel staðsettur miðsvæðis þegar horft er til alls þéttbýlis Reykjanesbæjar þar sem fjölfarnar leiðir mætast og er einnig staðsettur við mikilvægt íþróttasvæði. Nálægt svæðinu er mikið mannlíf, samfélagsþjónusta og starfsemi, eins og skólar, leikskólar, íþróttir og tómstundir, sundmiðstöð, verslanir, skrifstofuhúsnæði, almenningssamgöngur og margt annað. Er þetta því stórt tækifæri til að tengja byggðina betur saman og Akademíureiturinn talinn vera kjörinn vettvangur fyrir nýjan samkomustað.





Í kjölfarið verða mótaðar helstu forsendur þróunar svæðisins og það svo boðið út til fjárfesta og hönnuða sem þróunarsvæði til uppbyggingar miðbæjartengdar starfsemi.



 
 
 

Kommentare


Sími 582 5000

  • Facebook
  • Instagram
  • Twitter

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

Kt. 630401-3130 

bottom of page