Yfirlýsing og andlitslyfting hjá G.RUN
Sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði hefur sett sér skýra gæðastefnu og einn af meginþáttum hennar er að engum aukefnum er bætt í vörur fyrirtækisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins vildu koma skýrri yfirlýsingu um þetta til skila til viðskiptavina og fengu því Alta í lið með sér til að leggja á ráðin um hvernig það yrði best gert. Þróað var sérstakt merki sem fyrirtækið setur á vörur sínar ásamt upplýsingum um fyrirtækið og starfsemi þess, nýtt útlit var