Námskeið um samráð og þátttöku íbúa
Alta býður námskeið um markvisst samráð og samstarf við hagaðila, sem er ein lykil forsenda farsælla ákvarðana á fjölmörgum sviðum
I. Grunnnámskeið: Um skipulag árangursríks samráðs í verkefnum og gerð samráðsstefnu
Markmið námskeiðsins er að þátttakandi öðlist skilning á samráði, að hverju þurfi að huga við skipulag árangursríks samráðs og færni til að nýta það í daglegu starfi.
Námskeiðið nýtist fulltrúum sveitarfélaga- og / eða stofnana, þar sem samráð er nauðsynlegt eða líklegt til að leiða til farsælli ákvarðana.
Farið er yfir:
-
Hugmyndafræðina á bak við samráð og hvað í því felst.
-
Skipulag samráðsverkefna: samráðsstigann, gerð hagaðilagreiningar og samráðsáætlunar.
-
Leiðir til samráðs, kynningarefni og samráðsaðferðir - augliti til auglitis eða rafrænar.
-
Gerð samráðsstefnu og áætlunar um hvenær, við hverja og hvernig samráði skuli háttað í ólíkum verkefnum.
Tímasetning samkvæmt samkomulagi.
II. Leiðsögn um skipulag samráðs í völdu verkefni
Sérsniðið eftir samkomulagi.
III. Gerð samráðsstefnu
Sérsniðið eftir samkomulagi.
Umsjón: Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi hjá Alta.
Skráning og frekari upplýsingar á namskeid@alta.is