Verkefni

Akademíureitur í Reykjanesbæ
Mótun framtíðarsýnar fyrir þróunarsvæði
Alta aðstoðaði Reykjanesbæ við að skipuleggja nýtt og lifandi miðsvæði á Akademíureit, austan við Reykjaneshöllina. Vinnan fól í sér greiningu og mótun skipulagsramma ásamt viðamiklu samráði.
Í greiningarvinnunni kom fram að Akademíureiturinn er vel staðsettur miðsvæðis þegar horft er til alls þéttbýlisins í Reykjanesbæ. Þar mætast fjölfarnar leiðir og svæðið liggur jafnframt við mikilvægt íþróttasvæði. Í nágrenninu er mikið mannlíf, samfélagsþjónusta og fjölbreytt starfsemi - svo sem skólar, leikskólar, sundmiðstöð, verslanir, skrifstofuhúsnæði og almenningssamgöngur.
Svæðið felur því í sér stórt tækifæri til að tengja byggðina betur saman og er Akademíureiturinn talinn kjörinn vettvangur fyrir nýjan samkomustað. Í kjölfarið voru mótaðar helstu forsendur fyrir þróun og skipulagi svæðisins sem nýs akkers og samfélagsmiðju í Reykjanesbæ.




