Verkefni

Blágrænn Grundarfjörður
Rammahluti Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039
Alta vann tillögu að rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar fyrir blágrænar ofanvatnslausnir. Grundarfjörður fékk LIFE-ICEWATER styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar á slíkum lausnum í bænum, á grunni framsýnnar stefnumörkunar í aðalskipulaginu. Grundarfjarðarbær er hér í fararbroddi og verður fyrsta sveitarfélagið á landinu til að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í þéttbýlinu öllu.
Rammahlutinn byggir á ofanvatnsáætlun sem unnin var af verkfræðistofunni COWI í Noregi. Þar eru meginrennslisleiðir og söfnunarsvæði ofanvatns skilgreind út frá greiningum á náttúrulegum vatnasviðum og flóðaleiðum. Meginrennslisleiðirnar liggja meðfram götum og veita vatninu, sem kemur meðal annars frá upplandi bæjarins, í átt að sjó. Meðfram þeim eru græn svæði sem skilgreind hafa verið sem söfnunarsvæði þar sem ofanvatn getur safnast fyrir, sem hægir á rennsli þess í miklum úrkomuatburðum.



