top of page

Verkefni

Grunn-munnstur-05.png

Brennslu- og orkunýtingarstöð í Vestmannaeyjum

Umhverfismati fyrir brennslu- og orkunýtingarstöð er lokið í Eyjum, ásamt deiliskipulagi fyrir móttökustöð með stórbættu fyrirkomulagi fyrir móttöku úrgangs.


Vestmannaeyjabær undirbýr uppsetningu á brennslu- og orkunýtingarstöð fyrir óflokkaðan úrgang á lóð móttökustöðvar fyrir úrgang í Eyjum. Alta var ráðgjafi Vestmanneyjabæjar í umhverfismatinu og vann samhliða nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöðina.

Lóð móttökustöðvarinnar hefur verið endurskipulögð í deiliskipulaginu og nýju móttökusvæði fyrir flokkaðan úrgang, meðhöndlunar-, flokkunar- og geymslusvæði komið fyrir auk aðstöðu til móttöku spilliefna og starfsmannaaðstöðu. Nýtt svæði fyrir móttöku úrgangs frá almenningi hefur einnig verið skipulagt og verður lóðin endurgerð með sandfangi og olíugildru.

bottom of page