top of page

Verkefni

Grunn-munnstur-05.png

Deiliskipulag Ölkeldudals í Grundarfjarðarbæ

Þar sem boðið er upp á 24 nýjar íbúðir í raðhúsum og litlum fjölbýlum við grunnskólann í bænum.

Samhliða uppbyggingu íbúðarsvæðisins var Paimpolgarðurinn skipulagður sem skjólsæll almenningsgarður í góðu samspili við skóla- og íþróttasvæðið, Fellaskjól, aðliggjandi byggð og bæinn allan. Við endurskoðun deiliskipulagsins voru gerðar nauðsynlegar breytingar á götum, gangstéttum og umferðarskipulagi til að stuðla að bættu umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur. Sérstaklega er hugað að aðkomu og aðgengi að skóla- og íþróttasvæðinu með öryggi skólabarna í huga, auk þess sem bætt er við stígum, gangstéttum og öruggari gangbrautum.

Samfara uppbyggingu í Ölkeldudalnum verður fráveitukerfið bætt með því að aðgreina skólp og ofanvatn. Blágrænar ofanvatnslausnir verða innleiddar og núverandi fráveitulagnir nýttar fyrir skólp. Blágrænt fráveitukerfi hefur því verið hannað og samþætt annarri skipulagshönnun á svæðinu. Þannig er tryggð hagkvæm innleiðing lausnanna, þar sem þær verða hluti af yfirborðshönnun, uppbyggingu og frágangi gatna, gangstíga og grænna svæða.

Sími 582 5000

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

Kt. 630401-3130 

bottom of page