top of page
Verkefni
Deiliskipulag Garðahverfis í Garðabæ
Áherslur deiliskipulagsins eru að stuðla að varðveislu menningar- og náttúruminja í Garðahverfi og gera það aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar.
Sérstaklega er tekið mið af sögulega sérstöku búsetulandslagi og aldagömlu hlutverki svæðisins, sem kirkju- og menningarstaðar, en um leið lögð áhersla á að tryggja viðhald og eðlilega þróun byggðar í Garðahverfi. Deiliskipulag Garðahverfis var síðar nýtt í tillögu um verndarsvæði í byggð og varð eitt af fyrstu svæðunum á landinu sem var samþykkt á þeim grunni.
bottom of page