Verkefni

Deiliskipulag iðnaðarsvæðis vestan Kvernár
Markmiðið var að auka framboð á lóðum fyrir iðnaðarstarfsemi í Grundarfjarðarbæ til framtíðar og tryggja hagkvæma nýtingu á landi, innviðum og jarðefnum.
Skipulag og uppbygging þessa iðnaðarsvæðis var mikilvægur þáttur í að styrkja grunnþjónustu og auka fjölbreytni í atvinnusköpun í Gundarfjarðarbæ. Jafnframt var horft til þess að nýta vel þær auðlindir sem felast í grjótnámi á svæðinu áður en það verður byggt upp.
Efnisvinnsla hefur þegar farið fram á hluta deiliskipulagssvæðisins, en undir nærri því öllu svæðinu er að finna verðmætt berg, þótt misþykkt sé. Bergið nýtist vel sem burðarlag í landfyllingar og vegi, og þá sérstaklega sem grjót í sjóvarnargarða og hafnargerð, en slíkt efni er af skornum skammti.
Í skipulagsvinnunni kom fram, byggt á jarðfræði svæðisins, að uppbygging iðnaðarsvæðisins og landmótun með efnistöku geta farið vel saman. Var ríkt tillit tekið til þess við mótun deiliskipulagsins.Einnig var unnið ofanvatnsskipulag fyrir iðnaðarsvæðið, sem segir til um hvernig blágrænum ofanvatnslausnum er beitt á skipulegan hátt fyrir iðnaðarsvæðið í heild. Ofanvatnsskipulagið tryggir að útkoman verði skilvirk fráveita ofanvatnsins, sem virkar vel undir álagi og er örugg, auk virkrar hreinsunar ofanvatnsins.


