top of page

Verkefni

Grunn-munnstur-05.png

Deiliskipulagsgerð fyrir Vestmannaeyjabæ

Alta hefur unnið kostagreiningar og unnið fjölmargar deiliskipulagsáætlanir fyrir Vestmannaeyjabæ, m.a. í miðbæ og á hafnarsvæði.

Alta hefur átt í farsælu samstarfi við Vestmannaeyjabæ í ýmsum skipulagsmálum. Meðal deiliskipulagsáætlana sem Alta hefur unnið í Eyjum eru svæði í rótgrónum hverfum á Heimaey, s.s. miðbæ, hafnarsvæði, athafnasvæði og íbúasvæði. Einnig á nýjum svæðum þar sem vinnan felur einnig í sér kostagreiningu í sambandi við staðarval mikilvægrar starfsemi eða mat á umhverfisáhrifum. Áhersla er á að þróun fari vel saman við verndun byggingararfs, yfirbragðs byggðar og sérstæða náttúru Vestmannaeyja.

bottom of page