Blágrænar ofanvatnslausnir - Samstarf HÍ og Grundarfjarðar að frumkvæði Alta
- 4 hours ago
- 3 min read
Grundarfjarðarbær og verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands hafa skrifað undir mikilvægan samning um rannsóknarsamstarf á sviði blágrænna ofanvatnslausna (BGO). Rannsóknirnar byggja á þeim áskorunum sem Grundarfjörður stendur frammi fyrir og munu brúa þekkingargöp hér á landi þegar kemur að blágrænum ofanvatnslausnum, sem víða hafa verið að ryðja sér rúms í nágrannalöndunum.
Uppleggið sem HÍ leggur upp með fyrir Grundarfjörð er unnið að frumkvæði Alta, sem hefur verið leiðandi í þekkingu og innleiðingu BGO á Íslandi. Alta vann einnig með HÍ að því að setja á laggirnar rannsóknir á vatnafræðilegri virkni BGO í Urriðaholti í Garðabæ á síðustu árum, en þær rannsóknir hafa skipt sköpum við innleiðingu BGO á Íslandi.

Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði
Samstarfssamningurinn felur í sér lykilrannsóknir á virkni BGO í þéttbýli Grundarfjarðarbæjar, en bærinn innleiðir nú blágrænar ofanvatnslausnir í öllu þéttbýlinu. Um er að ræða frumkvöðlaverkefni á landsvísu, þar sem þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem blágræn ofanvatnsveita er hönnuð fyrir heilan bæ. Innleiðingin er styrkt af LIFE-ICELWATER og er hluti verkefnisins fólginn í því að styðja við og stuðla að rannsóknum sem sýna fram á virkni BGO í Grundarfirði.

Í Grundarfirði geta komið miklar hellidembur sem núverandi fráveitukerfi ræður ekki við. Vatnsmagnið er margfalt á við það sem gerist víðast hvar annars staðar á landinu, og við það bætist að töluvert vatn rennur úr hlíðinni ofan við bæinn. Þetta hefur skapað flóðahættu og því er endurnýjun ofanvatnskerfisins orðin afar brýn.
Innleiðing BGO er liður í að tvöfalda fráveitukerfi bæjarins með því að aðgreina betur skólp og ofanvatn. Þannig má minnka flóðahættu og komast hjá rándýrum hreinsiaðgerðum. Í staðinn er fjármagni varið ofanjarðar til að meðhöndla, hreinsa og minnka ofanvatn í byggðinni á sjálfbæran hátt, sem um leið fegrar bæinn og gerir hann grænni. BGO eykur jafnframt seiglu bæjarins gegn ofsaúrkomu sem hefur farið vaxandi vegna loftslagsbreytinga, og lækkar um leið umhverfisálag byggðarinnar. Innleiðing BGO í Grundarfirði slær því margar flugur í einu höggi.
Rannsóknarvinna og vöktun
Rannsóknir HÍ verða leiddar af prófessor Hrund Ólöfu Andradóttur, sem hefur þegar unnið mikilvæg frumkvöðlastörf á sviði rannsókna á BGO hérlendis. Rannsóknirnar munu sérstaklega beinast að vatnasviði Hrannarstígs og aðliggjandi svæðum, þangað sem mikið vatn rennur úr hlíðinni, en þegar er byrjað að umbreyta götunni með blágrænum lausnum.
Skoðaðar verða tvær mismunandi gerðir lausna: annars vegar safnlaut í Paimpol-garðinum og hins vegar gróðurrásir meðfram götunni sjálfri. Með vöktuninni fæst dýrmæt þekking á því hvernig jarðvegur, gróður og snjóalög hafa áhrif á miðlun ofanvatns við íslenskar aðstæður.
Samfara uppbyggingunni verður virkni lausnanna mæld með tvennum hætti:
Við skólpútrásir: Settir verða upp mælar til að sjá hversu hratt dregur úr ofanvatni í blönduðu fráveitukerfi bæjarins.
Í gróðurbeðum: Settir verða upp síritandi mælar sem mæla rennsli ofanvatns um og í gegnum jarðveg í blágrænum gróðurbeðum.
Mælingarnar munu nýtast starfsfólki Grundarfjarðarbæjar og vísindamönnum við að greina hvaða aðstæður reyna mest á kerfið, ásamt því að skrásetja viðhaldsþörf og reynslu af innleiðingunni. Stefnt er að því að fá meistaranema í umhverfis- og byggingarverkfræði við HÍ til að vinna úr gögnunum sem hluta af meistaraverkefni.


Comments