top of page

Blágrænn Grundarfjörður

4 hours ago
2 min read

Rammahluti aðalskipulags fyrir blágrænan Grundarfjörð hefur nú verið samþykktur. Verkefnið hefur vakið mikla athygli á landsvísu og m.a. vísað til þess sem mikilvægs dæmi um hvernig sveitarfélög á Íslandi geta aðlagað sig að loftslagsbreytingum.


Hér er verið að horfa heildstætt á heilt bæjarfélag og leggja grunn að innleiðingu blágrænna ofanvatnlsuana í öllum bænum. Við erum gríðarlega stolt af þessari vinnu með Grundarfjarðarbæ sem er taka mikilvægt skref til framtíðar sem leiðandi sveitarfélag í umhverfisvænum lausnum.


Hvað eru blágrænar ofanvatnslausnir?

Blágrænar ofanvatnslausnir (BGO) eru veiturlausnir þar sem ofanvatn (s.s. rigningarvatn) sem lendir á hörðum flötum í bænum (s.s. götum, þökum og bílastæðum) er meðhöndlað á yfirborði í stað þess að leiða það í burtu með lögnum neðanjarðar. Ofanvatnið er látið sitra hægt niður í jarðveginn með gegndræpu yfirborði, gróðurbeðum og grænum geirum sem fegra um leið borgarrýmin. Þá eru græn svæði nýtt til að geyma ofanvatn og hreinsa úr því mengunarefni. Um leið er hringrás vatns viðhaldið innan bæjarins sem skiptir máli fyrir lífríki og líffræðilegan fjölbreytileika.



Með BGO er einnig verið að nýta náttúrulega hæfileika jarðvegs til að safna í sig vatni eins og svampur. Þannig getur bærinn tekið við meira vatnsmagni án þess að það valdi skemmdum og er betur í stakk búinn til að mæta auknu aftakaveðri. Því er verið að slá margar flugur í einu höggi og gera bæinn allt í senn; grænni með meira gróðri, umhverfisvænni með minni mengun og seigari gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga.




Áskorunum mætt með blágrænum ofanvatnslausnum


Ástæður fyrir því að farið var af stað með þetta verkefni í Grundarfirði voru nokkrar:


  • Aftakaúrkoma algengari í Grundarfjarðarbæ en víðast hvað á landinu, m.a. vegna loftslagsbreytinga og aðstreymi vatns er meira vegna hrakandi gróðurþekju ofan við bæinn.

  • Ofanvatn fer í blandað fráveitukerfi og eykur magn skólps, sem annar ekki álaginu í miklum aftakaveðrum. Mikið ofanvatn í kerfinu gerir hreinsun bæði erfiðari og miklu dýrari.

  • Fráveituvatn frá bænum, blanda af skólpi og regnvatni, rennur svo óhreinsað út í Breiðafjörð.

  • Kominn var tími á að endurnýja ýmis almenningsrými í Grundarfjarðarbæ.


Bæjaryfirvöld ákváðu að takast á við þessi vandamál með innleiðingu blágrænna lausna í bænum. Stefna um BGO var sett í aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2019.

Á þeim grunni var sóttur styrkur til LIFE- ICEWATER, til uppbyggingar grænna innviða í götum og almenningsgörðum og blágræn fráveita hönnuð fyrir allan bæinn með svokölluðum ofanvatnsramma.


Ofanvatnrammi

Blágrænn ofanvatnsrammi var settur sem rammahluti aðalskipulags. Hann byggir á ofanvatnsáætlun sem unnin var af COWI í Noregi. Þar eru m.a. útreikningar á því hvar ofanvatnið rennur og magni þess og leggur línur um meðferð ofanvatns með blágrænum lausnum.



Við sjáum hér meginrennslisleiðir ofanvatns í miklum rigningum og asahláku, þar sem vatnið getur runnið án þess að það hafi áhrif á mannvirki. Yfirleitt sést lítið til ofanvatnsins vegna gegndræpis yfirborðs. Þessi vinna skapar skýran ramma til að útfæra blágrænar lausnir nánar í deiliskipulagi, hönnun og framkvæmdum.



Eftirfarandi leiðarljós voru sett fram í vinnunni.



Við óskum Grundarfjarðarbæ til hamingju með þennan frábæra áfanga. Það verður spennandi að fylgjast með innleiðingunni á næstu árum.






 
 
 

Comments


Sími 582 5000

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

​

Kt. 630401-3130 

bottom of page