top of page

Nýtt myndband: Framtíðarsýn fyrir vestanvert Kársnes

  • 3 days ago
  • 1 min read

Kópavogsbær hefur gefið út nýtt myndband þar sem fjallað er um framtíðarsýn, íbúaþátttöku og skipulagsáform á vestanverðu Kársnesi. Sýnin er fest í sessi í rammahluta aðalskipulags Kópavogs fyrir vestanvert Kárness sem Alta vann með Kópavogsbæ.


Í myndbandinu fara Auður Dagný Kristinsdóttir (skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar), Halldóra Hreggviðsdóttir (ráðgjafi hjá Alta) og Jóhann Jökull Ásmundsson (íbúi á Kársnesi) yfir það sem framundan er á svæðinu.



Leiðarljós skipulagsins er að skapa heildstætt og aðlaðandi umhverfi til búsetu, atvinnu og afþreyingar. Hverfið er sérlega vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu og mun tilkoma Fossvogbrúarinnar tengja það á einstakan átt við háskólasvæðið í Vatnsmýri, Landspítalann og miðborg Reykjavíkur. Það verður þannig að einnig að mikilvægum viðkomustað Borgarlínunnar.


Við áframhaldandi þróun svæðisins er rík áhersla lögð á að varðveita sérstöðu hverfisins, styðja við fjölbreytta byggð og tryggja nálægð við náttúruna. Greinargerð skipulagsins má kynnar sér hér.


Staða mála: Myndbandið er gefið út í tengslum við rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes, sem þegar hefur verið samþykkt af bæjarstjórn og er nú í staðfestingarferli.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kíkja á myndbandið og kynna sér framtíð Kársnessins!

 
 
 

Sími 582 5000

  • Facebook
  • Instagram
  • Twitter

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

Kt. 630401-3130 

bottom of page