Blágrænn Grundarfjörður
- 5 days ago
- 2 min read
Updated: 2 days ago
Rammahluti aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir
Alta vann tillögu að rammahluta Aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar fyrir blágrænar ofanvatnslausnir, sem nú er í auglýsingu í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Grundarfjörður fékk nýlega LIFE-ICEWATER styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar blágrænna lausna til ársins 2030 á grunni framsýnnar stefnu aðalskipulagsins. Grundarfjarðarbær er hér í fararbroddi og verður fyrsta sveitarfélagið á landinu til að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í heilu þéttbýli.

Helstu ástæður fyrir því að það er brýnt að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði eru eftirfarandi:
Rigning í Grundarfirði er sambærileg við Bergen í Noregi og á síðustu árum hafa orðið nokkrir miklir úrkomuatburðir.
Vistkerfum, votlendi og gróðurþekju fyrir ofan bæinn hefur hrakað, sem leiðir til flóða í gegnum hann.
Blandað fráveitukerfi, með sameiginlegar lagnir fyrir skólp og regnvatn, annar ekki vatnsmagni í mikilli úrkomu með tilheyrandi flóðum.
Fráveituvatn frá bænum, blanda af skólpi og regnvatni, rennur óhreinsað út í Breiðafjörð.
Endurnýjun almenningsrýma er orðin tímabær í Grundarfirði.

Kostir þess að nýta blágrænar ofanvatnslausnir eru m.a. að:
Viðhalda náttúrulegum vatnsbúskap í nærumhverfinu.
Minnka líkur á vatnssöfnun og flóðum og draga úr álagi á veitukerfi.
Bæta vatnsgæði og sporna gegn mengun, sem síast úr ofanvatni í jarðveg áður en það rennur í viðtaka.
Styðja við líffræðilegan fjölbreytileika.
Draga úr uppbyggingar, rekstrar- og viðhaldskostnaði fráveitukerfa.
Fegra umhverfið og skapa betra nærveður með auknum gróðri og skjóli.
Auka seiglu gagnvart loftslagsbreytingum, bæði með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með auknum gróðri sem bindur koltvísýring og með því að aðlaga byggðina til að geta tekist á við aukna úrkomu.

Rammahlutinn byggir á svokallaðri ofanvatnsáætlun, sem unnin var af verkfræðistofunni COWI í Noregi, þar sem meginrennslisleiðir og söfnunarsvæði ofanvatns eru skilgreind út frá greiningum á náttúrulegum vatnasviðum og flóðaleiðum ofanvatns. Meginrennslisleiðirnar liggja meðfram götum og veita ofanvatni, sem kemur m.a. frá upplandi bæjarins, í átt að sjó. Meðfram þeim eru græn svæði, sem hafa verið skilgreind sem söfnunarsvæði, þar sem ofanvatn getur safnast fyrir og hægt er á rennsli þess í miklum úrkomuatburðum.

Innleiðing á slíku frumkvöðlaverkefni í bænum og grænkun og fegrun bæjarins sem því fylgir, getur ýtt undir stolt bæjarbúa og fengið gesti til að staldra lengur við. Reynsla Grundfirðinga mun einnig geta nýst öðrum bæjarfélögum sem hafa hug á að fara í sambærileg verkefni. Því er lögð mikil áhersla á að kynna verkefnið sem best fyrir íbúum Grundarfjarðar og öðrum áhugasömum. Kynningarbæklingur, sem Alta útbjó, var borinn í hús í Grundarfirði og kynningarefni og leiðbeiningar má nálgast undir Blágrænn Grundarfjörður á heimasíðu Grundarfjarðar.




Comments