top of page

Nýtt aðalskipulag fyrir Þingeyjarsveit

9 hours ago
1 min read

Í október 2026 var staðfest nýtt aðalskipulag fyrir Þingeyjarsveit. Það var nokkuð lengi í vinnslu því mótun þess hófst áður en Skútustaðahreppur og fyrri Þingeyjarsveit tóku afstöðu til sameiningar. Lýsing fyrir endurskoðað aðalskipulag hvors sveitarfélags var hluti af samfélagsumræðu um sameiningu, sem síðan var ákveðin árið 2022. Tillaga um aðalskipulag nýsameinaðs sveitarfélags var síðan kynnt 2023. Endanleg tillaga var síðan auglýst í september 2025.

Í nýju aðalskipulagi hefur verið skerpt á stefnumörkun og allar afmarkanir yfirfarnar. Leitast hefur verið við að bjóða fjölbreytta búsetukosti, bæði í dreifbýli og þéttbýli og skýr stefna sett um það hvenær krefjast skuli deiliskipulags.

Nýja aðalskipulagið má sjá hér í skipulagsgátt og hér í vefsjá aðalskipulagsins.

Alta þakkar öllum þeim fjölmörgu sem komu að gerð aðalskipulagsins fyrir ánægjulegt samstarf.



 
 
 

Comments


Sími 582 5000

  • LinkedIn
  • Facebook
  • Instagram

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

​

Kt. 630401-3130 

bottom of page